„smıþıt ok felldı ſvmt“
„ ſy ıaþı hann míok ok bað“
„at ver arım at“
„þa quaddı N ıall ſer lıoðſ “
„Rıð nv hoskvldr heım“
Víða eru göt í skinninu og um það bil helmingur af ytri dálki bl. 5 hefur verið skorinn burt.
Kaflafyrirsagnir með rauðu bleki.
Upphafsstafir í ýmsum litum.
Árni Magnússon bætir við upplýsingum um feril á spássíu 4r.
Band frá nóvember 1965. Pappakápa. Blöð fest á móttök.
Umslag með hendi Árna Magnússonar. Fastur seðill (70 mm x 114 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Úr Njáls sögu. Ekki þeirri sem átt hefur Finnur á Kálfalæk (Þórður Steindórsson) observai accuraté.“
Blöðin eru tímasett til fyrri hluta 14. aldar í Katalog I , bls. 118, en c1325 í ONPRegistre , bls. 434.
Árni Magnússon fékk frá Jóni Hannessyni í Reykjarfirði 1712, en hann hafði fengið frá Ásgeiri Sigurðssyni á Ósi í Steingrímsfirði (bl. 4r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. júlí 1973.
Tekið eftir Katalog I , bls. 117-21 (nr. 199). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885. Haraldur Bernharðsson tölvuskráði í febrúar 2001.
Gert við og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1965.