Um lækningameðöl úr jurta- og dýraríkinu, vatnið, lyndiseinkunnirnar, æðakerfið, fyrirsjáanleg merki um veikindi, leiðarvísa, litun o.fl. Mörg blöð og blaðsíður auð, sum að hluta til.
Ein hönd.
Band frá c1992-1994.
Fastur seðill (100 mm x 164 mm) með hendi Árna Magnússonar og annars skrifara: „Lækninga kver munast ad vera samann teked af sira Þorde Jonssyne J Hitardal og med hans hende skrifad. Monsieur Jon Thorkelsen til hórende 1720. Nu 1723 er dette mit.“
Með hendi séra Þórðar Jónssonar í Hítardal (sjá kápu) og tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 441, en virkt skriftartímabil Þórðar er á árunum 1630-1670.
Árni Magnússon fékk hjá Jóni Þorkelssyni að láni 1720 en til eignar 1723 (sjá kápu).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. september 1994.
Tekið eftir Katalog II , bls. 441 (nr. 2405). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 8. apríl 1890. ÞS skráði 14. maí 2002.
Viðgert og bundið frá desember 1992 til mars 1994. Eldra band fylgir og gömul viðgerðablöð sem liggja með handritinu.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.