Á efri helmingi 2v er skriftin mjög máð.
Ein hönd, klúðursleg skrift og frágangur.
Band frá því í febrúar 1967.
Fastur seðill (106 mm x 93 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Hér næst eftir kom Kötludraumur sem ég hefi uppskrifaðan. Var með annarri hendi, en ekki stórs eldri en þetta.“
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 390.
Á eftir fylgdi kvæðið Kötludraumur með annarri hendi en frá sama tíma og lét Árni Magnússon skrifa það upp (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. október 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 390 (nr. 2303). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 18. janúar 1890. ÞS skráði 30. janúar 2002.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í febrúar 1967. Eldra band liggur með handritinu í öskju.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.