Skráningarfærsla handrits
JS 28 fol.
Skoða myndirSögubók; Ísland, 1660
Innihald
„Hér byrjar sögu af Eigli Skallagrímssyni“
„Hér byrjar Búa sögu“
„Þáttur Jökuls Búasonar ins frækna“
„Þessi saga kallast Vatnsdæla“
„Saga Hálfdanar Brönufóstra“
„Sagan af Slysa-Hróa“
„Gullkárs ljóð“
Lýsing á handriti
Pappír.
Vatnsmerki.
Stöku blað laust úr kili, blöð 338-345 laus úr kili og varðveitt í sér umbúðum.
Upphafsstafi sagna vantar sem og upphafsstafi kafla á blöðum 216r-307v, en skilið er eftir autt pláss fyrir þá.
Ein hönd ; Skrifari:
Jón Erlendsson í Villingaholti.
Sendibréf sem dagsett er 4. apríl 1853, frá Valgerði Guðmundsdóttur til Kristínar Skúladóttur fannst í bandinu.
Band frá því um 1660 ( 323 mm x 208 mm x 80 mm).
Skinnband með tréspjöldum, þrykkt og kjölur upphleyptur. Spennur hafa verið á handriti en aðra vantar sem og móthak. Horn málmslegin.Spjaldblöð eru úr prentuðu riti, texti á dönsku og latínu.
Uppruni og ferill
Á fremra saurblað 3r stendur: „Virdulegur Herra Biskupenn Monsiör Brynjolfur Sveins son ad Skalholte, minn dygdarikur og elskulegur velgørda og ætt-broder, gaf mer þessa søgubók, enn eg gef hana nu dóttur minne Jarþrúde Hakonar dottur til eignar. Skrifad af Brædratungu 31 Ianuarij, Anno 1675. Helga Magnus dottir eigin hendi“
M[agnús] Ketilsson eignaðist handritið árið 1803 (sjá fremra saurblað 1r).
Síðan áttu Skúli Magnússon, Jón Eggertsson og Bogi Thorarensen þetta handrit.
Jón Sigurðsson hefur fengið handritið frá niðjum Magnúsar Ketilssonar, en með handritinu liggur sendibréf til Kristínar Skúladóttur í Fagradal ytra frá Valgerði Guðmundsdóttur í Tjaldanesi (1853).
Jón Sigurðsson fékk þetta handrit frá Boga Thorarensen. Samkvæmt lista sem fylgir sendibréfi sem Bogi sendi Jóni Sigurðssyni 7. apríl 1864 (sjá: JS 142 a fol) átti Magnús Ketilsson þetta handrit. Bogi fékk það í hendur frá Jóni Eggertssyni í Ytri-Fagradal sem hafði erft það eftir Skúla Magnússon, tengdaföður sinn.
Aðrar upplýsingar
Athugað 1998.

Vefhringur 







