Skráningarfærsla handrits
AM 371 4to
Handrit hefur ekki verið myndað.
Landnámabók og Kristnisaga; Ísland, 1302-1310
Innihald
Landnámabók
Brot.
Íslenzk handrit 3 1974.
Íslenzk fornrit I 1968.
Manuscripta Islandica 5 1960.
Íslendinga sögur I 1843, bls. 41-47, 76-85, 193-248, 264-281, 289-310.
Enginn titill
„… Björn son sinn …“
„… er átti Sigfús Elliðagrímsson …“
Enginn titill
„… Grímur hét maður Ingjaldsson …“
„…áður sundur gekk …“
Enginn titill
„… hann var göfugur maður og kynstór …“
„… víg Hróars og systursona hans …“
Enginn titill
„… hjá Jökulsfelli fyrir vestan …“
„… norður í torgar og br[endi] …“
Enginn titill
„… Dufþakur í Dufþaksholti …“
„… land í Hrunamanna …“
Kristni saga
„… Síðar lét Ólafur konungur skírast …“
„… og um ráðum Markus lögsögumanns og …“
Brot.
Biskupa sögur I 1858, bls. 9-28
Íslenzk fornrit 15 2003.
Íslenzk handrit 3 1974.
Manuscripta Islandica 5 1960.
Lýsing á handriti
Handritið var blaðmerkt af Kålund með rauðu bleki, 1-18.
Fjögur kver.
- Kver I: bl. 1-3, stök blöð.
- Kver II: bl. 4-9, 3 tvinn.
- Kver III: bl. 10-14, 2 tvinn og stakt blað (bl. 12).
- Kver IV: bl. 15-18, tvinn og 2 stök blöð (bl. 16 og 17).
- Flest eru blöðin meira eða minna slitin, götótt, rifin og krumpuð. Síst sködduð eru bl. 1, 3, 4, 6, 11 og 13-15.
- Mikið hefur verið skorið af blöðum 16-17 og er ekki nema lítill hluti þeirra eftir.
- Textinn á bl. 3 er sérstaklega illa farinn.
- Saumgöt á neðri spássíu blaðs 7.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 180-185 mm x 120-125 mm (fremsta blaðið er minna en hin og leturflötur minni, 175 mm x 115 mm).
- Línufjöldi er 33.
- Bendistafir á spássíum til að auðkenna vísur í texta, sjá bl. 2v, 9v, 10r, 12v, 18v og víðar.
- Leiðbeiningarstafir víða á spássíum, t.d. á bl. 4r, 7r, 10r, 11v-12r, 15r, 18v og víðar.
Með hendi Hauks Erlendssonar, textaskrift undir nokkrum áhrifum frá léttiskrift (Guðvarður Már Gunnlaugsson 2007).
Upphafsstafir í ýmsum litum, mest rauðum. Stærstir á bl. 8v (N) og 11r (H). Sá síðarnefndi er í grænum lit með rauðu flúri.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Línufyllingar víða með rauðu (sjá t.d. bl. 7r, 5r, 10v, 14r og víðar).
Band frá því í september 1966 (234 mm x 174 mm x 20 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Leður á kili og hornum. Saumað og límt á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Bl. 16-17 eru í plastvösum sem bundnir eru á sinn stað í handritinu. Handritið liggur í öskju.
Uppruni og ferill
- Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1302-1310 (sjá ONPRegistre, bls. 452), en til um 1300 í Katalog I, bls. 589.
- Upprunalega hefur þetta handrit átt heima með AM 544 4to og AM 675 4to og hafa þau saman myndað eina bók sem kennd er við skrifarann og kölluð Hauksbók.
- Í handritaskránni í AM 435 a 4to, blað 111v og áfram, gefur Árni Magnússon yfirlit um efni allrar Hauksbókar (AM 371 4to, AM 544 4to og AM 675 4to).
Árni Magnússon fékk flest blöðin send til Kaupmannahafnar frá séra Ólafi Jónssyni, en faðir hans, séra Jón Torfason áStað í Súgandafirði, fékk þau um 1660 frá Bjarna Indriðasyni í Skálavík. Jón tók þau í sundur og notaði utan um kver. Fjögur þessara blaða fékk Árni á Íslandi, frá Gaulverjabæ í Flóa eftir 1702. Áður virðast Jón Guðmundsson lærði og Brynjólfur Sveinsson biskup hafa notað þetta handrit, en Árni telur jafnvel að Brynjólfur hafi fengið það lánað frá Vestfjörðum (sbr. AM 435 a 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. júlí 1973.
Aðrar upplýsingar
- ÞS skráði skv. reglum TEI P5 9.-12. október 2009.
- HB færði inn grunnupplýsingar 15. maí 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. mars 1887 (sjá Katalog I 1889:589-591 (nr. 1123).
Við handritið var gert og það bundið inn í september 1966. Eldra band fylgdi ekki með.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir af bl. 1-14 og sérstök mynd af bl. 2v, á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í febrúar 1974.
- Ljósprent í Manuscripta Islandica 5 (1960) og í Íslenzk handrit. Series in fol. 3 (1974).
Notaskrá
| Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
|---|---|---|---|
| Íslenzk handrit 3 1974 | |||
| Íslenzk fornrit I 1968 | |||
| Manuscripta Islandica 5 1960 | |||
| Íslendínga sögur: udgivne efter gamle Haandskrifter af det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab | ed. Jón Sigurðsson | ||
| Biskupa sögur | ed. Hið Íslenzka bókmentafèlag | ||
| Íslenzk fornrit 15 2003 | |||
| Íslenzk handrit 3 1974 | |||
| Manuscripta Islandica 5 1960 | |||
| Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre | ed. Den arnamagnæanske kommision | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Manuscripta Islandica 5 (1960) | |||
| Íslenzk handrit. Series in fol. 3 (1974) | |||