Skráningarfærsla handrits
SÁM 10
Handrit hefur ekki verið myndað.
Sálmabók; Ísland, 1690-1710
Innihald
Krossskólasálmar
„Í þín[u] nafni ó [J]esú …“
„… og lof þitt ljóði. A M E N.“
Óheilir.
Bl. 1 autt viðgerðarblað. Bl. 3 autt viðgerðarblað til að tákna eyðu í hdr.
Framan við sálmana er ritningarvers.
Iðrunarsálmur
„Einn Iðrunarsálmur“
„Guð faðir góður, Guð þolinmóður …“
„Þér þakkir gjörum“
„… þér mun ég gjalda um aldir alda. A M E N.“
Morgunsálmur
„Einn morgunsálmur“
„Sæll þúsund sinnum sértu …“
„Dagur í austri öllu“
„… í eilífa himna borg. Amen.“
Kvöldsálmur
„Kvöldsálmurinn“
„Er nú dags úti tíðin …“
„Einn herra ég best ætti“
„… hef mig Guð upp hjá þér.“
Texti óverulega skertur.
Vikuvers
„Vikuvers“
„Guð faðir gæsku góði …“
„… Þú Guð sér viku …“
Texti víða skertur. Endar einnig óheilt í laugardagskvöldversi.
Lýsing á handriti
Upprunaleg blaðmerking 5-150 (4r-76v).
Átta kver.
- Kver I: 12 blöð, 6 tvinn (bl. 1 og 3 viðgerðarbl.).
- Kver II: 12 blöð, 6 tvinn.
- Kver III: 12 blöð, 6 tvinn.
- Kver IV: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver V: 6 blöð, 3 tvinn.
- Kver VI: 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver VII: 10 blöð, 5 tvinn.
- Kver VIII: 6 blöð, 3 tvinn.
- Texti skertur fremst og aftast vegna skemmda á bl., en einnig vantar eitt bl., bl. 3 sem nú er viðgerðarbl. Óvíst er hins vegar hvort einhver texti hefur verið á bl. 1, sem nú er einnig viðgerðarbl. Skemmdir eru og víða á öðrum bl. án þess að skerða texta.
- Handritið liggur laust í spjöldunum.
- Eindálka.
- Leturflötur er 53-61 mm x 52-48 mm.
- Línufjöldi er 13-16.
- Síðutitlar á 2r-76v.
- Griporð, nema þar sem bl. eru skemmd.
Óþekktur skrifari, kansellískrift.
Bl. 1r: Pennaflúraður og litaður upphafsstafur, litur grænn.
Víða pennaflúraðir upphafsstafir.
Bl. 1 og 3 viðgerðarblað.
Band frá 18. öld (83 mm x 72 mm x 17 mm), e.t.v. samtímaband. Tréspjöld og kjölur klædd skinni, blindþrykktu. Kjölur rifinn efst. Blöðin liggja laus í spjöldunum en spjaldblöðin og blað og blaðbútar úr bandi hafa verið losaðir frá og liggja nú í umslagi með handritinu. Á spjaldbl. og stærsta bl. úr bandi eru skrifaðir sálmar (m.a. Þín minning, Jesús, mjög sæt er og Tunga mín af hjarta hljóði) og trúarlegur texti. Blaðbútarnir eru bæði rifrildi úr spjaldbl. en einnig úr prentaðri bók, e.t.v. stærðfræðibók. Handritið liggur í pappaöskju með reimum.
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi, e.t.v. um 1700, því brotaskriftin sem hér er notuð varð sjaldgæf þegar líða tók á öldina.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi keypti handritið af Jóhanni Gunnari Ólafssyni bæjarfógeta á Ísafirði.
Aðrar upplýsingar
Vigdís Björnsdóttir gerði við handritið á Þjóðskjalasafni, 14.-17. apríl 1970.
Laus seðill fremst með fyrra safnmarki: „HÍ“.
Notaskrá
| Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
|---|---|---|---|