Skráningarfærsla handrits
AM 110 I-II 8vo
Handrit hefur ekki verið myndað.
Hungurvaka
Nafn
Árni Magnússon
Fæddur
13. nóvember 1663
Dáinn
7. janúar 1730
Starf
Prófessor
Hlutverk
Fræðimaður; Höfundur; Skrifari; Ljóðskáld
LATIN SMALL LETTER O WITH CURL[Special character shown similar to its original form.]
Nafn
Kålund, Kristian Peter Erasmus
Fæddur
19. ágúst 1844
Dáinn
4. júlí 1919
Starf
Librarian, scholar
Hlutverk
Fræðimaður
Nafn
Jón Egilsson
Fæddur
4. september 1548
Dáinn
1636
Starf
Prestur
Hlutverk
Höfundur
Aths.
Samsett úr tveimur handritum.
Lýsing á handriti
Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 18 + i blöð (175 mm x 106 mm). Blöð 1 og 15-17 eru auð.
Tölusetning blaða
- Þrenns konar seinni tíma blaðmerking: 1) Blaðmerkt með bláu bleki 1-13; þar eru innskotsblöð (seðlar) ónúmeruð.
- Blaðmerkt er með rauðu bleki 1-14, aftasta innskotsblað (seðill) er þar með í blaðtali.
- Blaðmerkt er með blýanti 1-17, blöð 15, 16, og 18 eru óblaðmerkt, aftasta innskotsblað (seðill) er þar með í blaðtali.
Band
Band (180 mm x 130 mm x 12 mm) er frá 1977.
- Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á kili og hornum.
- Saurblöð tilheyra bandi.
- Handritið liggur ásamt eldra bandi í blárri öskju.
Eldra band (174 mm x 107 mm x 5 mm).
- Spjöld og kjölur eru klædd, litríkum pappír.
- Blár safnmarksmiði er á kili.
Fylgigögn
- Fastur seðill (eitt tvinn, 163 mm x 99 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „þesse excerpta ur Hungrvoku eru ritud med hendi Sr Jons Eigilssonar, sem prestur var i Holum i Hreppum, og sidan veitslupresturi Skalhollte. þau voru fost saman og aptanvid Excerpta nefndz Sr Jons ur annal þeim, sem Mag. Bryniolfr hefur sidan kallad: Skalholltz annal hinn forna. og voru þau Excerpta med somu hendi sem þetta. fyrta sidan af þessum Hungrvoku Excerptis var ritud aptan ä fyrrskrifad Annals Excerpta, og vard eg hana þvi ad läta uppskrifa, svo ad eg þetta tvennt hvert fra odru separerad giæte. Annals excerpta eru eydilogd. Enn þesse Excerptaur Hungrvoku eiga ad þiena til ad hlaupa einhvern tima i giegnum og conferera res vid Hungrvoku. Eg seigi res. þvi þetta er einginn genuinus textus Hungrvoku, helldur alleina hennar contextus historicus, vertis exceptoris. “
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.
Uppruni og ferill
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 14. apríl 1978.
Aðrar upplýsingar
Skráningarferill
Viðgerðarsaga
Birgitte Dall gerði við og batt að nýju í Kaupmannahöfn í júní 1977.
Innihald
Hluti I ~ AM 110 8vo I
1(2r-14v)
Hungurvaka
Titill í handriti
„Annáll um Skálholt og þá biskupa er þar voru“
Upphaf
„Í fyrstu vil eg nú segja frá því …“
Aths.
Útdráttur sr. Jóns Egilssonar í Hrepphólum.
Á seðli sem límdur er á eldra band stendur m.h. Árna Magnússonar: „Brevarium Hungrvöku sr. Jóns Egilssonar 1601“.
Lýsing á handriti
Skrifarar og skrift
Með hendi sr. Jóns Egilssonar í Hrepphólum, blendingsskrift.
Fylgigögn
Á eftir öðru saurblaði er bundinn seðill (eitt tvinn, 2 blöð, merkt a-b með rauðu bleki) frá Árna Magnússyni með upplýsingum um handritið og útdráttinn.
Uppruni og ferill
Uppruni
Skrifað á Íslandi 4. desember 1601 (sbr. blað 14v m.h. skrifara).
Hluti II ~ AM 110 8vo II
2(18r-v)
Hungurvaka
Aths.
Vantar framan af. Niðurlag frásagnarinnar um drápið á Páli Jónssyni á Skarði (1498)
Lýsing á handriti
Skrifarar og skrift
- Óþekktur skrifari, blendingsskrift.
Uppruni og ferill
Uppruni
Skrifað á Íslandi á 17. öld.
Notaskrá
| Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund |