Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á handrit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.
Gjöf 9. maí 1967 frá Þráni Valdimarssyni, Boðaslóð 5, Vestmannaeyjum, að ósk fósturbróður hans, Einars Jóelssonar frá Sælundi í Vestmannaeyjum, en hann fékk kverið frá móður sinni, Oktavíu Einarsdóttur. Upplýsingar frá Þórði Tómassyni: „Þetta kver er komið frá Einari í Bjólu föður Oktavíu og er án efa frá föður hans, Einari hreppsstjóra á Ysta-skála og afa, Sighvati Einarssyni í Skálakoti undir Eyjafjöllum. Þetta kynni að vera skrifað af föður Sighvats Einari Einarssyni bónda í Skálakoti, því ekki er þetta hönd Sighvats.“