Ættartala bóndans Þorsteins Bjarnasonar á Skaftafelli. Skrásett af Magnúsi Bjarnasyni á Hnappavöllum.
„Bjarni Jónsson á Skaftafelli, sáttmaður hans faðir …“
„… Yngvar á Álftanesi.“
Ættarrakningin er í 72 greinum.
Eitt kver:
Samkvæmt blaði 1r skrásetti Magnús Bjarnason á Hnappavöllum ættir Þorsteins Bjarnasonar. Höndin er sprettskrift eða snarhönd.
Band (170 mm x 105 mm x 12 mm): Tréspjöld og kjölur eru klædd brúnu leðri í eitt. Klæðningin er sennilega ekki upphafleg á bandinu (sjá: Ástand).
Kverið er laust í bandinu.
Handritið liggur í öskju með SÁM 116a og SÁM 116c-f.
SÁM 116a-f eru komin á Stofnun Árna Magnússonar úr búi Einars Ólafs Sveinssonar.