Rímur af Vilmundi viðutan og Hjaranda fóstbræðrum, ortar árið 1815.
„Hallar fornu tvíblinds til …“
„… flestum bast með togum.“
„Skrifaðar árið 1866 af Þ. Jónassyni “
Tíu rímur; ortar 1815 (sjá nánar Rímnatal 1966: 502).
Tölusetning blaða: 1-48 (27. sept. 2010).
Sex kver.
Með einni hendi, skrifari er sbr. blað 48v Þ. Jónasson; snarhönd.
Á titilsíðu eru fylltir stafir með svörtum lit; leturflötur síðunnar er afmarkaður með tvöfaldri línustrikun (sjá blað 1r).
Við upphaf rímna eru flúraðir og fylltir stafir (með svörtum lit), t.d. á blöðum 2r og 9v.
Band (175 mm x 107 mm x 13 mm): Pappaspjöld eru klædd marmarapappír (bláum, hvítum, gulum og ljósrauðum). Blár shirtingur er á spjaldhornum og kili. Á kili er gylling og er titill rímnanna gylltur: Rímur af Vilmundi viðutan eftir Guðna Jónsson.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 107, 108, 109, 111 og 112.
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1866 (sbr.48v).