Rímur af Tístram og Indíönu, kveðnar af skáldinu Níels Jónssyni .
„Fyrsta ríma“
„Langt er síðan leyfðag mér …“
„… einar seinast rímur.“
„Endar 23. febrúar 1857 af Fr. Daníelssyni.“
(Skrifaraklausan er á blaði 148v). Sautján rímur; ortar 1844 (sjá nánar Rímnatal 1966: 471). Blað 149 er autt fyrir utan nöfn skrifuð með blýanti á verso-hlið blaðsins (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Tölusetning blaða: 1-149 (27. sept. 2010).
Blað 149 er autt fyrir utan nöfn skrifuð með blýanti á verso-hlið blaðsins.
Nítjtán kver.
Með einni hendi, skrifari er, sbr. blað 148v, Fr. Daníelsson; sprettskrift.
Á titilsíðu eru stafir fylltir með þremur litum, gænum, bláum og dökkbrúnum.
Nöfn, fyrirsagnir og fyrsta lína rímu (o.fl.) eru með stærra og settara letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 1r og 74v-75r).
Band (165 mm x 105 mm x 28 mm): Spjöld og kjölur eru klædd dökkbrúnu skinni. Á kili er gylling: Rímur af Tísran og Indíönu.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 107, 108, 110, 111, 112.
Handritið var skrifað á Íslandi og endað 23. febrúar 1857 (sbr.148v).
VH skráði í september 2010.