Rímur af Andra, þær fyrstu orktar af séra Hannesi Bjarnasyni , svo af Gísla Konráðssyni, þá prestinum, enar síðustu af fyrrnefndum Gísla
„1. ríma“
„Endurbæta Andra ljóð …“
„… þjóð á svella hólmi.“
„OOlaviune.“
Skrifaraklausan er á blaði 131v, neðst í hægra horni.
Tuttugu og fjórar rímur; Hannes orti 1.-9. rímur, Gísli 10. (þar í fornskáldatal), 11. ríma er eignuð fyrri konu Gísla, Efemíu Benediktsdóttur, 12.-13. er eftir Hannes, 14.-24. eftir Gísla ( Rímnatal 1966: 35; (sjá nánar 34-35)).
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-260 (titilsíða er upprunalega ótölusett); blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-131.
Sautján kver.
Með einni hendi; skriftin er síðfljótaskrift, nöfn og í flestum tilfellum fyrsta lína erindis eru með snarhönd og/eða kansellískrift.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu og í flestum tilfellum fyrsta lína erindis, eru með stærra og settara letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 8v og 57r).
Bókahnútur er á blaði 1r.
Band (160 mm x 105 mm x 25 mm): Kápuspjöld eru úr pappa og klædd brúnum marmarapappír, brúnt leður á kili og spjaldhornum (sjá nánar: Ástand).
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 100, 102, 103, 104, 105 og 106.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á nítjándu öld .
VH skráði í september 2010.