Rímur af Artimundi Úlfarssyni Kveðnar af Þorvaldi Þorleifssyni á Horni í Hornafirði 1864.
„1. ríma“
„Til hvers Óðins tittlingar …“
„… á dýrðar palla sína.“
„Endaðar 13. febrúar 1873.“
Skrifaraklausan er á blaði 93v. Hndr.: Lbs. 2080 8vo (vantar mansöngva), Lbs. 2382 8vo, Lbs. 2965 8vo, Lbs. 3403 8vo (sbr. Rímnasafn 1966: 44); einnig: Lbs. 3586 8vo.
Þrettán kver.
Með einni hendi, skrifari ókunnur. Sprettskrift eða snarhönd. Fyrirsagnir með áhrifum frá kansellískrift.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra letri en er á meginmáli (sjá t.d. blöð 23r og 35v).
Band (187 mm x 115-117 mm x 20 mm) er frá síðari hluta 18. aldar. Bókarspjöld eru úr tré (beyki) með álímdum þykkum pappír á ytra byrði sem brotinn hefur verið inn á spjaldið og innbrotin þrædd saman með grönnum þræði; spjaldpappír innan á fremra spjaldi liggur laus en er horfinn af því aftara. Dökkbrúnt skinn með áþrykktu mynstri er á kili, líklega skorið af eldra bókbandi.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 91, 93, 94, 95, 96 og 97.
Handritið var skrifað á Íslandi, 1873.(sbr. blað 93v).
VH skráði í september 2010.