Skráningarfærsla handrits

SÁM 88

Rímur af Hervöru og Heiðreki konungi ; Ísland, 1866

Titilsíða

Rímur af Hervöru og Heiðreki konungi. Kveðnar árið 1823 af Gísla Konráðssyni skáldi. Skrifaðar árið 1866. Kr. Sigurðsson.

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-113v)
Rímur af Hervöru og Heiðreki konungi
Upphaf

Skáld mig bað, en skylda var …

Niðurlag

… gnoðar vetur líða.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + i (titilblað) +113 blöð + i (160 mm x 98 mm).
Tölusetning blaða
Upphafleg blaðsíðumerkin 1-226. Blaðsett af skrásetjara með blýanti 1-113.
Kveraskipan

Fjórtán kver.

  • Kver I: blöð1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 57-64, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 65-72, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 73-80, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 81-88, 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 89-96, 4 tvinn
  • Kver XIII: blöð 97-104, 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 105-112, 4 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 133-135 mm x 75 mm.
  • Línufjöldi er ca 23-24.

Ástand
Bandið hefur látið verulega á sjá. Aftasta kverið hefur losnað að hluta.
Skrifarar og skrift

Með hendi Kr. Sigurðssonar; snarhönd.

Skreytingar

Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra letri en annars er á textanum (snarhönd), (sjá t.d. blöð 41v og 93r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Á saurblaði stendur Helga Jóhanna Pálsdóttir. Stimpill Halldórs Steinmanns er tvítekinn á titilsíðu handritsins: H. Steinmann.
Band

Band er frá síðari hluta nítjándu aldar (162 mm x 100 mm x 18 mm); leður er á kili og lítilsháttar merki sjást um að horn hafi einnig verið leðurklædd, spjaldpappír er að mestu horfinn af fremra kápuspjaldi en er enn á aftara spjaldi að hálfu.

Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 85, 86, 87, 89 og 90.

Fylgigögn
Afhendingarlisti Kvæðamannafélagsins Iðunnar, dagsettur 15. september 2008. Einnig fylgir miði með númeri handrits á afhendingarlista með.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, árið 1866 (sjá titilsíðu). .

Ferill
Handritið er gjöf frá Kvæðamannafélaginu Iðunni; tölusett sem nr. 25 á afhendingarlista (sjá fylgigögn). Það var áður í safni Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu þann 15. september 2008. Formleg afhending handritanna fór fram ári síðar, 15. september 2009, þegar Kvæðamannafélagið Iðunn fagnaði 80 ára afmæli sínu.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði í ágúst 2010.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Safnmark
  • SÁM 88
  • Efnisorð
  • Rímur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn