„Rímur af Þorsteini Svarfað“
„Þögnin mæðir garpa geð …“
„… hræðast fræði spjalla.“
„EPson.“
(Skrifaraklausan er á blaði 74v). Tuttugu og þrjár rímur. Hndr.: Lbs. 704 4to, ÍB 424 8vo (sjá Rímnatal 1966: 489).
„Rímur af frönskum timburmanni“
„Langar vökur leiðast mér …“
„… fellur slóðum þagnar á.“
„EPson.“
(Skrifaraklausan er á blaði 93v). Fimm rímur.
Þrettán kver.
Um skrifarann er ekki vitað með vissu en þetta gæti verið eiginhandarrit höfundar Eiríks Pálssonar (?) (sjá skrifaraklausu); höndin er sprettskrift / snarhönd.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra letri en annars er á textanum, og skriftin á þeim er snarhönd (sjá t.d. blöð 19r og 62r). Undantekning er þó fyrirsögnin að Rímum af Þorsteini svörfuð þar sem líkt er eftir prentuðum stöfum og þeir blekfylltir (sjá blað 1r).
Band frá 19. öld (167 mm x 105 mm x 18 mm); gæti verið upphaflegt (?); spjöld og kjölur klædd spýttu skinni; fremra spjaldblað er klætt pappír úr dönsku blaði þar sem fram kemur ártalið 1843; aftara spjaldblað er klætt samskonar pappír og er í blöðum handritsins.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 85, 86, 88, 89 og 90.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta 19. aldar.
VH skráði í ágúst 2010.