Skráningarfærsla handrits

SÁM 87

Rímur af Þorsteini Svörfuð ; Ísland, 1850-1899

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-74v)
Rímur af Þorsteini Svörfuð
Titill í handriti

Rímur af Þorsteini Svarfað

Upphaf

Þögnin mæðir garpa geð …

Niðurlag

… hræðast fræði spjalla.

Skrifaraklausa

EPson.

Athugasemd

(Skrifaraklausan er á blaði 74v).

Tuttugu og þrjár rímur. Hndr.: Lbs. 704 4to, ÍB 424 8vo (sjá Rímnatal 1966: 489).

Efnisorð
2 (75r-93v)
Rímur af frönskum timburmanni
Titill í handriti

Rímur af frönskum timburmanni

Upphaf

Langar vökur leiðast mér …

Niðurlag

… fellur slóðum þagnar á.

Skrifaraklausa

EPson.

Athugasemd

(Skrifaraklausan er á blaði 93v).

Fimm rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
93 blöð (166 mm x 102-105 mm).
Tölusetning blaða
Blaðsett af skrásetjara með blýanti 1-93.
Kveraskipan

Þrettán kver.

  • Kver I: blöð1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-36, 2 tvinn.
  • Kver VI: blöð 37-40, 2 tvinn.
  • Kver VII: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 49-56, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 57-64, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 65-74, 5 tvinn.
  • Kver XI: blöð 75-82, 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 83-90, 4 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 91-93, 1 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 140-145 mm x 80-86 mm.
  • Línufjöldi er ca 27-33.

Skrifarar og skrift

Um skrifarann er ekki vitað með vissu en þetta gæti verið eiginhandarrit höfundar Eiríks Pálssonar (?) (sjá skrifaraklausu); höndin er sprettskrift / snarhönd.

Skreytingar

Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra letri en annars er á textanum, og skriftin á þeim er snarhönd (sjá t.d. blöð 19r og 62r). Undantekning er þó fyrirsögnin að Rímum af Þorsteini svörfuð þar sem líkt er eftir prentuðum stöfum og þeir blekfylltir (sjá blað 1r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Stimpill Halldórs Steinmanns er þrítekinn á titilsíðu: H. Steinmann.
Band

Band frá 19. öld (167 mm x 105 mm x 18 mm); gæti verið upphaflegt (?); spjöld og kjölur klædd spýttu skinni; fremra spjaldblað er klætt pappír úr dönsku blaði þar sem fram kemur ártalið 1843; aftara spjaldblað er klætt samskonar pappír og er í blöðum handritsins.

Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 85, 86, 88, 89 og 90.

Fylgigögn
Afhendingarlisti Kvæðamannafélagsins Iðunnar, dagsettur 15. september 2008. Einnig fylgir miði með númeri handrits á afhendingarlista með.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta 19. aldar.

Ferill
Handritið er gjöf frá Kvæðamannafélaginu Iðunni; tölusett sem nr. 24 á afhendingarlista (sjá fylgigögn). Það var áður í safni Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu þann 15. september 2008. Formleg afhending handritanna fór fram ári síðar, 15. september 2009, þegar Kvæðamannafélagið Iðunn fagnaði 80 ára afmæli sínu.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði í ágúst 2010.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Safnmark
  • SÁM 87
  • Efnisorð
  • Rímur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn