Á blaði 1r er eftirfarandi innilhaldslýsing: Þessi bók hefur inni að halda eftirfylgjandi rímur I. af Pantaleon, II. af Ormi Stórólfssyni, III. af Haraldi Hringsbana, IV. af Ingvari, V. af Flóris kóngi og sonum hans, VI. af Víkingi Vífilssyni og Þorsteini syni hans.
„… “
„… gjalla hljóða rjóð.“
Sjö rímur. Engin fyrirsögn, gæti vantað framan af handriti?
„Rímur af Ormi Stórólfssyni “
„Heimsins breytni … “
„… blessan drottins finni.“
„Skinnastöðum í Öxarfirði 3. maí 1793.“
Sex rímur. Undir rímunum eru vísur og kemur nafn höfundar þar fram.
(Skrifaraklausan er á blaði 36v).
„Ingvars rímur kveðnar af Magnúsi Hallsyni“
„Margar sögur skáldin skýr … “
„… “
Tólf rímur. Enda óheilar.
„Hér skrifast rímur af Flóris kóngi og sonum hans“
„Þögn eg hrynda að vísu vil … “
„… út er runnin tunnan tóm , tekur hún upp að þor.“
„Endaðar að Skinnastöðum þann 5. febrúar 1793 af VG. skrifi “
Tólf rímur.
(Skrifaraklausan er á blaði 133v).
„Hér skrifast rímur af Víkingi Vífilssyni og Þorsteini syni hans, kveðnar af Jóni Þorsteinssyni“
„Þögnin guðir seggi senn … “
„… ljóðin láti annars standa.“
„ 5. febrúar 1793.“
Átján rímur.
(Skrifaraklausan er á blaði 203r).
Tuttugu og sex kver.
Óþekktur skrifari (sjá þó blað 133v hugsanlega upphafsstafi skrifarans VG eða VB??), fljótaskrift.
Stórir blekfylltir og flúraðir upphafsstafir sem virðast stækka stöðugt eftir því sem á uppskriftina líður. Þetta má sjá t.d. á blöðum 6r, 17r, 61r, 100r, 134r, 171r og 197v.
Bókahnútur eru við niðurlag rímna (sjá t.d. blöð 133v og 203r
Fyrirsagnir og fyrsta lína í rímu eru með stærra og settara letri en er á meginmáli, (sjá t.d. blöð 134r og 197v).
Á blaði 1r kemur fram örnefnið Geitagerði. Á blaði 2v eru síðari viðbætur og pennaprufur. Þar kemur m.a. fram:
Band (200 mm x 165 mm x 42 mm) hugsanlega frá nítjándu öld. Sennilega ekki upprunalega bandið þar sem sneyðst hefur af skriffleti sumra blaðanna m.a. á blaði 100. Pappaspjöld eru klædd brúnu skinni, áþrykktu; spjaldblöð eru úr bláum pappír hafa losnað frá fremra spjaldi að hluta en alveg frá því aftara. Undir þeim við kjöl er klæðning úr prentuðum blöðum.
Handritið liggur í grárri pappaöskju.
Meðfylgjandi er gjafabréf dagsett 17. apríl 2009.
Handritið var skrifað á Íslandi, þ.e. að Skinnastöðum í Öxarfirði. sennilega ekki fyrir 1792 (sbr. blað 36v) og ekki eftir 5. febrúar 1793 (sbr. blað 203r (sjá einnig Skrifarar og skrift).
VH skráði í ágúst 2010.