Skráningarfærsla handrits

SÁM 76

Kvæði og rímur ; Ísland

Athugasemd
Efnisyfirlit er á fremra saurblaði og samkvæmt því er: Innihald 1. Grímseyjarvísur, 2. Hugarfundur, 3. Kappakvæði, 4. Jóhönnuraunir, 5. Rímur af Gústaf og Valves, 6. Rímur af Tútu og Vilhelmínu, 7. Rímur af Sigurði turnara, 8. Rímur af Þorsteini Víkingssyni, 9. Rímur af Hálfdani Eysteinssyni, 10. Rímur af Gríshildi þolinmóðu

Undir er vísa sem hefst svo: Til að stytta stundir mér …

Innihald

1 (1r-4v )
Grímseyjarvísur
Titill í handriti

Grímseyjarvísur kveðnar af prestinum síra Guðmundi Erlendssyni.

Upphaf

Almáttugur Guð himna hæða …

Niðurlag

… göfgist hann af hjarta og mál.

Skrifaraklausa

Endað 22. janúar 1869

Athugasemd

Sextíu og átta erindi.

(Skrifaraklausan er á blaði 4v)

1.1 (4v)
Enginn titill
Upphaf

Þegar neyðin þvingar mest …

Athugasemd

Lausavísa þessi er neðanmáls á eftir skrifaraklausunni.

Efnisorð
2 (5r-6r )
Hugarfundur
Titill í handriti

Hér byrjast það merkilega kvæði Hugarfundur kveðinn af hr. Magnúsi Einarssyni á Tjörn í Svarfaðardal

Upphaf

Margt kann buga heims í höllu …

Niðurlag

… hljóða snauður kennist eg.

Skrifaraklausa

40 erindi.

3 (6v-8v)
Kappakvæði Guðmundar Bergþórssonar
Höfundur

Guðmundur Bergþórsson

Titill í handriti

Kappakvæði ort af Guðmundi sál. Bergþórssyni

Upphaf

Geystur þeysi Glettu byr …

Niðurlag

… þeir vilja mínum fundinum ná.

Skrifaraklausa

Endað 1. febrúar 1869.

Athugasemd

Fjórtán erindi.

Í innihaldslýsingu Einars Gunnars Péturssonar á efni handritsins segir að þetta kvæði sé ekki alþekkt og ekki sé getið um viðlagið í yfirlitsbókum um slíkt efni (sbr. innihaldslýsingu).

Í umfjöllun um Steinunni Finnsdóttur og kvæði hennar á BRAGI - óðfræðivefur er minnst á kappakvæði hennar og í tengslum við það er minnst á kappakvæði sem hér er skráð og það sagt eftir Guðmund Bergþórsson. Á vefnum segir að kvæðið sem hefst á vísuorðinu 'Geystur þjóti Glettu byr' og er með sama viðlagi og kvæði Steinunnar sé merkt með stöfunum G. B. S. sem vísar trúlega til Guðmundar Bergþórssonar. Það er þó sennilega röng ályktun skrifara þar sem svo virðist sem Árni Böðvarsson bindi nafn sitt í lok ljóðsins.

3.1 (6v)
Stef Kappakvæðis
Upphaf

Eg sá þá ríða / riddarana þrjá,

Niðurlag

þeir vilja mínum fundinum ná.

3.2 (8v)
Enginn titill
Upphaf

Hefur óðar skrifað skrá …

Athugasemd

Lausavísa þessi er neðanmáls á eftir skrifaraklausunni.

Efnisorð
4 (9r-26v )
Rímur af Gústaf Adolf og Valvesi
Titill í handriti

Rímur af Gustaf og Valvesi, ortar af Sigurði Breiðfjörð 1837.

Upphaf

Hef eg til þín hug og mál …

Niðurlag

… sem yndið kærast beiðir.

Athugasemd

Sjö rímur. Rímurnar eru prentaðar 1860.

Efnisorð
5 (27r-43v )
Jóhönnuraunir
Titill í handriti

Ævintýrið Jóhönnuraunir kveðnar af Snorra Bjarnasyni

Upphaf

Uppheims rósar lagar lind / læt eg mengi svala …

Niðurlag

… svo til friðar ranna.

Athugasemd

Sjö rímur.

Þær hafa verið gefnar út þrisvar sinnum og 25 handrit eru til af þeim Í Landsbókasafni (sbr. innihaldslýsingu).

Efnisorð
6 (44r-64v )
Rímur af Tútó kóngi og Vilhelmínu
Titill í handriti

Rímur af Túto kóngi og Vilhelmínu kveðnar af Hallgrími læknir

Upphaf

Efnið kemur máls á met …

Niðurlag

… gleði, frið og sóma.

Athugasemd

Átta rímur.

Efnisorð
6.1 (64v )
Enginn titill
Upphaf

Kvæðin tíðum stytta stund …

Athugasemd

Lausavísa þessi er neðanmáls á eftir rímunum.

Efnisorð
7 (65r-80v )
Rímur af Sigurði turnara
Titill í handriti

Rímurnar af Sigurði turnara

Upphaf

Efnið kemur máls á met …

Niðurlag

… slagur kvæða.

Athugasemd

Sex rímur.

Efnisorð
7.1 (80v )
Enginn titill
Upphaf

Þessi tróð var / þulin ljóð …

Athugasemd

Lausavísa þessi er neðanmáls á eftir rímunum.

Efnisorð
8 (81r-122v )
Rímur af Þorsteini Víkingssyni
Titill í handriti

Rímurnar af Þorsteini Víkingssyni, kveðnar af Magnúsi skáldi Jónssyni

Upphaf

Kemur dagur / rökkrið þverr …

Niðurlag

… frí af móði styggða.

Athugasemd

Höfundur er ýmist kenndur við Magnússkóga. Eiginhandrit til (sbr. meðfylgjandi innihaldslýsingu) eða Laugar (sbr. JS 45 okt.(sjá einnig Lbs 3966 4to) ).

Sextán rímur.

Efnisorð
8.1 (122v )
Enginn titill
Upphaf

Þessi kera þundar hér …

Athugasemd

Lausavísa þessi er neðanmáls á eftir rímunum.

Efnisorð
9 (123r-150v )
Rímur af Hálfdani Eysteinssyni
Titill í handriti

Rímurnar af Hálfdani Eysteinssyni

Upphaf

Kemur dagur / rökkrið þverr …

Niðurlag

… frí af móði styggða.

Athugasemd

Eiginhandrit til (sbr. meðfylgjandi innihaldslýsingu (sjá einnig Lbs 3966 4to)).

Níu rímur.

Efnisorð
9.1 (150v )
Enginn titill
Upphaf

Ljóða dvínar þulan þá …

Athugasemd

Upphöf nokkurrra vísna sem koma á eftir rímunum.

Efnisorð
10 (151r-aftara saurblaðs)
Rímur af Gríshildi góðu
Titill í handriti

Rímurnar af Gríshildi þolinmóðu

Upphaf

Gauta sjónar gjaldi með …

Niðurlag

… lífs hver undur skína.

Athugasemd

Eiginhandrit til, prentaðar 1910 (sbr. meðfylgjandi innihaldslýsingu).

Sjö rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
i + 172 + i blöð í (202 +/- 1 mm x 165 +/- 2 mm).
Tölusetning blaða
Blaðmerkt af skrásetjara með blýanti: 1-172. Upphafleg tölusetning blaða er ekki til staðar.
Kveraskipan

Fjörutíu og tvö kver.

  • Kver I: blöð 1-4, 2 tvinn.
  • Kver II: blöð 5-8, 2 tvinn.
  • Kver III: blöð 9-12, 2 tvinn.
  • Kver IV: blöð 13-16, 2 tvinn.
  • Kver V: blöð 17-20, 2 tvinn.
  • Kver VI: blöð 21-24, 2 tvinn.
  • Kver VII: blöð 25-28, 2 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 29-32, 2 tvinn.
  • Kver IX: blöð 33-36, 2 tvinn.
  • Kver X: blöð 37-40, 2 tvinn.
  • Kver XI: blöð 41-44, 2 tvinn.
  • Kver XII: blöð 45-48, 2 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 49-52, 2 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 53-56, 2 tvinn.
  • Kver XV: blöð 57-60, 2 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 61-64, 2 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 65-68, 2 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 69-72, 2 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 73-76, 2 tvinn.
  • Kver XX: blöð 77-80, 2 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 81-84, 2 tvinn.
  • Kver XXII: blöð 85-88, 2 tvinn.
  • Kver XXIII: blöð 89-92, 2 tvinn.
  • Kver XXIV: blöð 93-96, 2 tvinn.
  • Kver XXV: blöð 97-100, 2 tvinn.
  • Kver XXVI: blöð 101-104, 2 tvinn.
  • Kver XXVII: blöð 105-108, 2 tvinn.
  • Kver XXVIII: blöð 109-112, 2 tvinn.
  • Kver XXIX: blöð 113-116, 2 tvinn.
  • Kver : blöð 117-120, 2 tvinn.
  • Kver XXXI: blöð 121-124, 2 tvinn.
  • Kver XXXII: blöð 125-128, 2 tvinn.
  • Kver XXXIII: blöð 129-132, 2 tvinn.
  • Kver XXXIV: blöð 133-138, 3 tvinn.
  • Kver XXXV: blöð 139-142, 2 tvinn.
  • Kver XXXVI: blöð 143-146, 2 tvinn.
  • Kver XXXVII: blöð 147-150, 2 tvinn.
  • Kver XXXVIII: blöð 151-154, 2 tvinn.
  • Kver XXXIX: blöð 155-158, 2 tvinn.
  • Kver XL: blöð 159-162, 2 tvinn.
  • Kver XLI: blöð 163-166, 2 tvinn.
  • Kver XLII: blöð 167-172, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160-165 mm x 130-135 mm.
  • Línufjöldi er 27-30.
  • Víðast hvar er strikað fyrir leturfleti, með blýanti eða með rauðum lit, neðri spássía undanskilin.
  • Griporð

Ástand

  • Kápuklæðning handritsins er orðin máð og dökkur yfirborðslitur er á undanhaldi svo víða skín í ljósari undirlit.
  • Blettir sem myndast hafa samfara notkun og hugsanlega vegna þess að blöð hafi blotnað (sbr. t.d. fremra saurblað-9v.)

Skrifarar og skrift

Með einni hendi, skrifari er óþekktur. Snarhönd.

Skreytingar

Kaflafyrirsagnir eru með stærra og settara letri en almennt er á textanum. Það á einnig við um fyrstu línu í kafla (sbr. blöð 1r og 33r).

Band

Líklega er bandið (205 mm x 175 mm x 30 mm) samtímaband, þ.e. frá seinni hluta 19. aldar. Spjöld og kjölur eru klædd með pappír (upphaflega svörtum eða dökkbrúnum). Handritið liggur í grárri pappaöskju.

Fylgigögn
Meðfylgjandi eru tvö vélrituð blöð (A4) með upplýsingum um innihald, miði með upplýsingum um aðföng og feril og miði með upplýsingum um gefendur handritsins.

Meðfylgjandi í pappaöskjunni er blaðagrein Rare Icelandic books for auction.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var hugsnalega skrifað á Íslandi 1869, sbr. blöð 4v og 8v.

Aðföng

Handritið barst Stofnun Árna Magnússonar 12. maí 2006 og það er gjöf frá Erni Arnar ræðismanni í Minneapolis. Handritið hafði hann fengið frá Ritu Goodmanson, ekkju Friðriks Thorsteins Goodmanson (Friðrik var f. 18. apríl 1921). Foreldrar Friðriks voru Grimsie Goodmanson og Roonie Magnusson (sbr. aðfangamiða).

Handritið kom ásamt prentaðri bók: Levys kennslubók handa yfirsetukonum … Rvk. 1871. Aftan við var Huuslægen Kbh. 1868.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið í júlí 2010

Lýsigögn