Textinn er á dönsku og skriftin ekki sem læsilegust. Á fyrstu tveimur blöðunum (1-2) eru textar undir fyrirsögninni Fra Rugepladsen og eru um Æddefugle eða Ædefugle (Eddefugle, Edefugle); á blaði 3 er fyrirsögnin Moder kærlighed. Fyrirsagnir á blöðum 4 og 5 eru illlæsilegar en á blaði 6r hefst frásögn undir fyrirsögninni Fra Sakselven. Sú frásögn er á blöðum 6-8.
Átta blöð sem upphaflega hafa myndað tvinn við blöð sem nú má sjá leifar af við kjöl.
Jóhann Sigurjónsson; snarhönd.
Stílabók (305 mm x 196 mm x 3 mm). Brúnleit pappakápa. Efst í vinstra horni á fremra kápuspjaldi er stimpill: Regensbogen … Busck [og] Wisbech (Arnold Busck) København. Á aftara spjaldi er annar stimpill: Busck [og] Wisbech Arnold Busck Købmagergade 49 (ved Rundetaarn) Bobhandel Papirhandel. Kunsthandel Universitetslærebøger Leverandør til Regensens Brugsforening. Specialitet: Postpapir - Couverter (Prøver sendes gratis) Postkort.
Handritið er í öskju með SÁM 61 a, c-e.
Handritið er skrifað í Danmörku ca 1899-1919.
Jóhann Sigurjónsson var fæddur 1880 á Laxamýri. Eftir hann liggja ljóð, leikrit, smásögur og ævintýri. Meðal frægustu verka hans eru Fjalla-Eyvindur, Galdra-Loftur, Mörður Valgarðsson, Bóndinn á Hrauni og Rung læknir.
Handritið sem er í fimm hlutum (SÁM 61 a-e) varðveitir aðdráttarkompur skáldsins, sem geyma margvíslegan fróðleik um vinnubrögð hans og þróunarferil einstakra skáldverka, t. d. Bóndans á Hrauni, Fjalla-Eyvindar og Marðar Valgarðssonar(sbr. gjafabréf Sveins Einarssonar).
Jóhann Sigurjónsson dó 1919 (sjá Gunnar Gunnarsson 1940: 7-75).
Sigurður Nordal fékk handritið að gjöf 1920 frá Ingeborg Sigurjónsson ekkju skáldsins.
Sigurður Nordal gaf síðan Sveini Einarssyni handritið og frá honum er það komið til Stofnunar Árna Magnússonar (sbr. gjafabréf).
Stofnunin fékk handritið afhent 12. desember 1996
VH skráði samkvæmt reglum TEIP5, 18. og 24. nóvember 2010.
Við skráningu var stuðst við eftirfarandi heimildir: Jóhann Sigurjónsson Ritsafn I-III 1980, Gunnar Gunnarsson, formáli 1980: 7-75; Helge Toldberg 1966; Jón Viðar Jónsson 2000: 6-7.