Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 2323 4to

Rímur ; Ísland, 1882-1893

Titilsíða

Rímnabók eftir ýmsa höfunda III. Skrifuð 1885-1890 S. Gr. B. (1r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r)
Efnisyfirlit
2 (3r-61v)
Rollantsrímur
Titill í handriti

Hér hefur Rímur af Roneevals þætti, eður Rollant, kveðnar af Þórði Magnússyni á Strjúgi, skrifaðar hér eftir handriti Árna skálds Böðvarssonar, en hann hefir skrifað á Ingjaldshóli, og endað 14. júlí 1762.

Upphaf

Mörg hafa fræðin mætir fyr / meistarar diktað fróðir …

Athugasemd

18 rímur.

Efnisorð
3 (62r-135r)
Rímur af Sveini Múkssyni
Titill í handriti

Hér skrifast Rímur af Sveini Múkssyni, ortar af Kolbeini sál. Grímssyni.

Upphaf

Heiðólfs bát ég hrindi á dröfn / úr hreysi sagnar láða …

Skrifaraklausa

Þessar rímur eru skrifaðar eftir sama handriti og næstu rímur á undan, með hönd Árna Böðvarssonar, en aftast af síðustu rímunni vantar niðurlagið, líklega eitt blað í bókina. Þess vegna verður ekki séð nær þær hafi verið ortar, sem skáldið mun þó hafa getið um í niðurlaginu. Þær eru nú skrifaðar á Höfða í Dýrafirði, og endar þann 28. apríl, sem var sá fyrsti þriðjudagur í sumri, 1885. S. Gr. Borgfirðingur.

Athugasemd

23 rímur.

Efnisorð
4 (135v-205v)
Rímur af Gretti
Titill í handriti

Rímur af Gretti sterka, kveðnar af Kolbeini Grímssyni.

Upphaf

Skýrt mig orða skortir val / að skemmta fólki fínu …

Skrifaraklausa

Endaðar á Höfða í Dýrafirði, annan miðvikudag í sumri, sem þá var 6. maí 1885. Sighvatur Grímss: Borgfirðingur.

Athugasemd

20 rímur.

Efnisorð
5 (206r-250v)
Rímur af Nitídu frægu
Titill í handriti

Rímur af Nitída hinni frægu, ortar af Jóni Gottskálkssyni

Vensl

Uppkrift eftir handritinu ÍB 476 4to.

Upphaf

Nú skal byrja náms við þey / af Nitída hinni frægu …

Skrifaraklausa

Handritið, sem eftir er skrifað, er bók í 4to, mjög fúin og skemmd, án blaðsíðu- og erindatals, með laglegu og jöfnu settletri. Þar eru á: 1. Nitída rímur og sést ekkert af fyrsta mansöngnum, sem hefur verið á fyrstu síðunni, en sem nú er límt yfir, 2. Rímur af Ingvari, 3. Rímur af Octovíanus og sonum hans (eða Flóres og Leó), aftur í 15. rímu, en þá vantar aftan af bókinni. Við endann á Nitída rímum er skrifað: "1055" - sem á að vera erindatalan í rímunum og með annarri hönd: "Í þessum rímum er 1134 erindi." - Skrifað á Höfða 14.-21. apríl 1890 af Sighvati Gr. B.

Athugasemd

18 rímur

Efnisorð
6 (251r-280v)
Rímur af Ingvari Ölvessyni
Titill í handriti

Rímur af Ingvari Ölvessyni.

Vensl

Uppkrift eftir handritinu ÍB 476 4to.

Upphaf

Vænar sögur skáldin skýr / skrifa með greinum sönnum …

Skrifaraklausa

Þessar rímur eru nú upp skrifaðar á Höfða í Dýrafirði, byrjaðar 21. apríl, en endaðar þann 24. apríl, á sumardaginn fyrsta, 1890. - Handritið sem eftir er ritað, var svo maukfúið og dottin stykki úr blöðunum að sumstaðar var ólesandi, en þó hvað verst, að límt hafði verið upp á málið, sem ég gat sumstaðar ekki skafið af, vegna fúa. - Rímurnar eru tilí handritasafni Bókmenntafélagsins í Kaupmannahöfn nr. 52 í 4to og eru þar eignaðar Magnúsi Hallssyni. - Þær eru og til í safni Bókmenntafélagsins í Reykjavík á Sögubók, nr. 18 í 4 blaða broti með fyrirsögn: "Rímur af Ingvari Ölvissyni og þeim margfróðu köppum, Pretti og Narva, ásamt Capusi og Óttari. - Þær eru og [í] Safni Árna Magnússonar, nr. 616 E 4to, og í Stokkhólmi nr. 42 4to chart (brot); Sumir eigna þær Magnúsi Jónssyni prúða en aðrir Magnúsi Hallssyni, sem er ókunnugt skáld og segir dr. Jón Þorkelsson yngri að hann hafi máske verið Austfirðingur og hafi víst ekki lifað seinna en um miðju 17. aldar. - 24. apríl 1890. Sighvatur Gr. Borgfirðingur.

Athugasemd

12 rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
i + 280 + i blöð (213 mm x 174 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Sighvatur Grímsson Borgfirðingur

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1882-1893
Aðföng

Lbs 2265-2387 4to, eru meðal handrita þeirra, er safnið keypti af Sighvati Grímssyni Borgfirðingi með samningi 20. júní 1906, og afhent voru að fullu eftir andlát hans, 1930.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir jók við skráningu 9. desember 2016 ;Bragi Þorgrímur Ólafsson frumskráði fyrir myndatöku,3. desember 2012 ; Handritaskrá, 3. bindi, bls. 302-303.
Lýsigögn
×

Lýsigögn