Manuscript Detail
KBAdd 19 4to
There are currently no images available for this manuscript.
Egils saga Skallagrímssonar; Copenhagen, 1700-1799
Contents
Egils saga Skallagrímssonar
“Egils saga Skallagrímssonar”
“Úlfur hét maður og var Bjálfason …”
“… og kom margt manna frá honum. Og lýkur hér þessari frásögu.”
Skrifað eftir AM 461 4to (sbr. bl. 146v).
Physical Description
- Blekslettur, sem skemma þó ekki texta, á bl. 1.
- Blettur ofarlega á bl. 86 en texti er læsilegur. Bletturinn nær yfir á bl. 87.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 160-165 mm x 120-130 mm.
- Línufjöldi er 22-24.
- Vísuorð eru sér um línu og oftast þannig að vísuhelmingar standa hlið við hlið. Lengri kvæði eru í tveimur dálkum.
- Kaflanúmer á spássíum
Óþekktur skrifari, snarhönd.
- Upplýsingar um uppruna á bl. 146v.
- Spássíugreinar á bl. 8v, 34r, 39r, 104v og 146v.
- Leiðréttingar og lesbrigði víða á spássíum og ofanlínu, einkum við kveðskap.
Band frá 19. öld (213 mm x 172 mm x 35 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnleitu flæðimynstri. Upphleyptar rendur á kili og safnmarksmiði. Tveir safnmarksmiðar á fremra spjaldblaði. Handritið liggur í öskju.
History
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Kålund tímasetur það til 18. aldar (Katalog 1900:435).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Additional
- ÞS skráði 10. nóvember 2009.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1900 (Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter: 435 (nr. 53)).
Morten Grønbech gerði við í ágúst til nóvember 1995. Ekki hreyft við bandi en lagt í nýja öskju. Lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket | ed. Kristian Kålund |