„Seðlaskrá um konungsbréf (1403-1569) og nokkur jarðaskjöl (ódagsett eða óárfærð), sem finna má í nokkrum skjalabókum í Árnasafni“
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.