Upprunaleg blaðsíðumerking 1-535.
Árni Gíslason? Líklega með hönd Árna Gíslasonar, síðar prests að Stafafelli (samanber fangamarkið A. G. s. á skjólblaði fremst).
Skreytt titilsíða.
Band frá ca. 1780-1860 (134 mm x 167 mm x 55 mm).
Skinnband, tréspjöld klædd blindþrykktu bókfelli með spennu.Snið blálit.
Handritið er í öskju.
Jón Sigurðsson fékk handritið 1863 frá Marteini Jónssyni (á Stafafelli).
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.