„Sulpiciusríma (svo kölluð) innihaldandi helstu borðsiða- og máltíðareglur“
„Minnavísur og forsagnir“
Skinnband.
Jón Sigurðsson fékk handritið 1868 frá Jóni Guðmundssyni á Mýrum í Dýrafirði.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.