„Málsháttasafn (Problematia et proverbia moralia). Það er orðtök hagleg.“
Ásamt vísum eftir Gísla framan við.
Skinnhefti.
Bindið er brot (2 skinnblöð) úr kaþólskri messubók (frá 15. öld). Það hefur nú fengið safnmarkið Lbs fragm 97.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.