Skráningarfærsla handrits

JS 500 4to

Háskólafyrirlestrar ; Danmörk, 1834-1836

Tungumál textans
danska

Innihald

1 (1r-48v)
Den Græske Philosophies Historie fra Aristoteles til den christne Tidsalder.
2 (49r-56v)
Vaserne.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír (3 mismunandi tegundir).

Blaðfjöldi
i + 60 + i blöð (225 mm x 169 mm). Auð blöð: 28v, 49v og 57-60.
Umbrot

Einn dálkur.

Leturflötur er 215 mm x 126 mm.

Leturflötur er afmarkaður með broti á blaði.

Skrifarar og skrift
Ein hönd; Skrifari:

Jón Sigurðsson, sprettskrift, eiginhandarrit.

Skreytingar

Bókahnútur: 28r.

Band

Skinn á kili, pergament á hornum.

Runólfur Guðjónsson batt á árunum 1908-1942.

Fylgigögn

Milli saurblaðs 1v og blaðs 1r er fastur miði, líklega umbúðarmerking.

2 lausir seðlar.

Uppruni og ferill

Uppruni
Danmörk, Kaupmannahöfn 1834-1836.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir leiðrétti skráningu fyrir myndvinnslu, 28. júní 2010 Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði, 8. febrúar 2010 ; Handritaskrá, 3. b.
Viðgerðarsaga

Runólfur Guðjónsson batt á árunum 1908-1942.

Athugað fyrir myndatöku 1. júlí 2010: Bannað að mynda. Víða ritað inn að kili.

Notaskrá

Höfundur: Páll Eggert Ólason
Titill: Jón Sigurðsson
Umfang: I-V
Lýsigögn
×

Lýsigögn