„Aðskiljanlegt nýtt og gamalt sem er útlagt úr dönsku eftir ýmsum höfundum af faktor Jón Stephensen anno 1808 og 1809. Skrifað á Hofi í Álftafirði anno 1811 og 1812 af Sveini Pétursssyni.“
Þýðandi : Jón Stephensen
Börn hafa víða krassað og skrifað í þetta handrit, þar stendur meðal annars: Guðrún er að gráta og María er að hasta á Guðrúnu. Þá eru nöfnin Jón Jónsson, Gunnlaugur og Martha María skrifuð í handritið.
Skinnband.
Sigmundur Matthíasson átti þetta handrit árið 1858.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.