„Skamkell eður forvitni rógberinn. Gleði í þremur flokkum“
Samkvæmt handritaskrá er leikritið eftir Geir biskup Vídalín eða Sigurð Pétursson. Með hendi Jóns Péturssonar (samanber JS. 252, 4to.).
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.