„Antiqva qvædam decreta Comitialia et Statuta Synodalia“
Safn bréfa og dóma 1438-1686
Í bindinu eru sendibréf til Sveinbjarnar Bjarnasonar á Þverfelli, og á titilblaði vitnar hann, að séra Þorleifur Bjarnason eigi handritið. Jón Sigurðsson fékk handritið 1857 að gjöf frá Helga Thordarsen
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.