Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 112 4to

Skjalaskrá III ; Danmörk, 1835-1860

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-142v)
Regesta. Skjalaskrá III. Kanselíið 1630-1880
Ábyrgð

Safnari : Jón Sigurðsson

Athugasemd

Konungsbréf, kansellí-, rentukammers-, skólastjórnarráðs- og stjórnarráðsbréf, er Ísland varða á árunum 1280-1848. Flest eftir skjalabókum í ríkisskjalasafni Dana

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír, mismunandi tegundir.

Blaðfjöldi
ii + 142 + viii blöð (212-220 mm x 171-174 mm). Auð blöð: Allar versó síður auðar á blöðum 1r-114v, 116v, 122v, 128v, 130v, 132v, 136v, 138v, 140 og 142v.
Tölusetning blaða
Seinni tíma blaðsíðumerking 1-284 (1r-142v).
Umbrot

Einn dálkur.

Leturflötur er 40-215 mm x 135-179 mm

Leturflötur er afmarkaður með broti á blaði.

Skrifarar og skrift
Ein hönd, skrifari:

Jón Sigurðsson, snarhönd.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Spássíugreinar allvíða með hendi Jóns Sigurðssonar auk þess sem víða hefur verið skrifað á spássíur með seinni tíma rithönd.

Band

Skinn á kili og hornum, kjölur þrykktur með gyllingu. Blöð 115-116 eru laus úr bandi.

Fylgigögn

  • Handskrifaður lítill seðill með heiti bindisins.

Uppruni og ferill

Uppruni
Danmörk, Kaupmannahöfn ca. 1835-1860.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði, 19. júlí 2010 ; Handritaskrá, 3. b.
Lýsigögn
×

Lýsigögn