Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 18 fol.

Landnámabók ; Danmörk, 1837

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-93r)
Landnámabók
Titill í handriti

Þetta er prologus fyri bók þessi [með hendi Finns Magnússonar]

Vensl

Uppskrift eftir Sturlubók (AM 107 fol) með orðamun með hendi Finns Magnússonar eftir öðrum handritum.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Vatnsmerki.

Blaðfjöldi
ii + 93 + vi blöð (360 mm x 228 mm). Auð blöð: 2v, 10v, 32, 33v og 93v.
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 1-167 (1r-93r), innskotsblöð undanskilin.

Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu ; Skrifarar:

Jón Sigurðsson.

Finnur Magnússon.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Innskotsblöð með hendi Jóns Sigurðssonar 9-10, 29-31.

Blað 32 er autt innskotsblað.

Band

Skinn á kili og hornum. Kjölur þrykktur með gyllingu, efnisinnihald þrykkt á kjöl.

Uppruni og ferill

Uppruni
Danmörk 1837
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 6. júlí 2009 ; Sagnanet 26. febrúar 1998 ; Handritaskrá, 2. b.
Viðgerðarsaga

Athugað fyrir myndatöku 29. október 2010. Laus blöð.

Myndað í nóvember 2010.

Athugað 1998.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í nóvember 2010.

Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Landnámabók

Lýsigögn