Manuscript Detail
GKS 2365 4to
There are currently no images available for this manuscript.
Eddukvæði Sæmundar-Edda; Iceland, 1260-1280
Contents
Eddukvæði Sæmundar-Edda
Óheil.
Konungsbók Eddukvæða, 1986.
Physical Description
Blaðsíðumerkt 1-90.
- Eyða aftan við bl. 32, svo sem sést af auðu kveri er stungið hefur verið þar inn og spássíumerkingum neðst á bl. 32v og efst á bl. 33r.
- Síðari tíma viðbót á bl. 45v, sem upprunalega hefur aðeins verið skrifað að tveimur þriðjuhlutum, hefur aftur verið skafin burt.
- Spássíur eru mikið skertar við afskurð.
- Hér og þar minni háttar göt og rifur í skinninu, en flestar þó jafngamlar handritinu. Ein slík rifa á bl. 28 saumuð saman með grænum silkiþræði.
- Eindálka.
- Leturflötur er
- Línufjöldi er
Óþekktur skrifari, textaskrift.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Rauðir eða grænir upphafsstafir.
Víða skreytingar með hendi skrifara við kvæðislok á neðri spássíu.
- Átta auð innskotsblöð aftan við bl. 32 (eitt kver).
- Bókamerki Brynjólfs Sveinssonar biskups (“LL”) og ártalið 1643 á bl. 1r.
- Skrif á bl. eignuð Þormóði Torfasyni.
- Hönd Árna Magnússonar á stöku stað (en hann hefur skrifað handritið upp).
- Ýmsar athugagreinar og krot, þar á meðal nafnið Magnús Eiríksson á bl. 5r (frá um 1600).
Band frá 1992.
Saurblað að framan er yngra en handritið.
Band frá 18. öld. Skinnband með gyllingu. Á kili er titillinn “EDDA | SÆMUNDI” ásamt fangamarki Kristjáns konungs VII.
Nokkrir bókfellsstrimlar úr gamalli latneskri messusöngsbók hafa verið festir við saurblað fremst og er á þeim efnisyfirlit með hendi Ásgeirs Jónssonar.
History
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1270 (þ.e. óbundna málið, sjá ONPRegistre, bls. 472) en til loka 13. aldar í Katalog KB, bls. 43.
Brynjólfur Sveinsson biskup merkti sér handritið árið 1643 (sbr. bl. 1r) en sendi það Friðriki III Danakonungi að gjöf 1662.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. apríl 1971.
Additional
- ÞS skráði skv. reglum TEIP5 26.-27. nóvember 2009.
- HB skráði 6. apríl 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar ? (Katalog KB, bls. 43-44 (nr. 60).
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.