Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 431 12mo

Margrétar saga og lausn yfir jóðsjúkri konu ; Ísland, 1540-1560

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-21r)
Margrétar saga
Upphaf

Þann tíma í veröldu er náliga voru liðnir níutigir vetra …

Niðurlag

… með föður og syni og helgum anda. Per omnia secula seculorum. AMEN.

2 (21r-25v)
Lausn yfir jóðsjúkri konu
Titill í handriti

Lausn yfir jóðsjúkri konu

Upphaf

Sator arepo tenet opera …

Niðurlag

… per omnia secula seculorum. AMEN.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 25 + i blöð (118 mm x 90 mm).
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með bleki, 1-50.

Kveraskipan

Sex kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-10, stök blöð.
  • Kver III: bl. 11-14, 2 tvinn.
  • Kver IV: bl. 15-16, stök blöð.
  • Kver V: bl. 17-20, tvinn (bl. 17 og 20) og 2 stök blöð.
  • Kver VI: bl. 21-25, 2 tvinn og stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 80-85 mm x 55-62 mm.
  • Línufjöldi er 16-19.
  • Upphafsstafir eru víða dregnir út úr leturfleti.

Ástand

Blöð 13 og 14 skemmd í efra horni við kjöl sem hefur áhrif á texta.

Skrifarar og skrift

Líklega með hendi Jóns Arasonar, árléttiskrift (sjá Karl Ó. Ólafsson 2006).

Skreytingar

Fremst í handritinu er mynd af kvendýrlingi sem ríður kynjaskepnu. Um myndina er pennaskreyttur rammi með laufteinungum og fleira skrauti, m.a. tveimur mannamyndum.

Myndir af kynjaskepnum á neðri spássíu á bl. 2r, 8r-v, 12r-13r, 14r,15r-v, 17r, 20r-v. Víða er skýringartexti með myndunum.

Mannamyndir á neðri spássíu bl. 9r, 12v, 13v, 14v (og fugl), 19r, 21r, 22r. Víða er skýringartexti með myndunum.

Teiknaðar hendur á neðri spássíu bl. 3r og 8r.

Annað pennaskraut á bl. 4r, 6r, 7r, 16v, 23r.

Pennaflúraðir upphafsstafir víða, sumir með mannsandlitum.

Rauðritaðar fyrirsagnir.

Band

Band frá 19. öld (127 mm x 97 mm x 15 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnleitu marmaramunstri. Skinn á kili og hornum. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju.

Fylgigögn

  • Fastur seðill með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril á rektóhlið. Frá monsieur Gísla Jónssyni á Völlum til eignar.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
  • Blað með kveraskiptingu eftir Morten Grønbech.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1550 (sjá ONPRegistre , bls. 466), en til um 1500 í Katalog II , bls. 481.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Gísla Jónssyni á Völlum (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. apríl 1992.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði skv. reglum TEIP5 22. september 2009.

GI færði inn grunnupplýsingar17. september 2002.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. ágúst 1890 ( Katalog II 1894:481 (nr. 2512) ).

Viðgerðarsaga

Yfirfarið í apríl 1992.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar.

Notaskrá

Titill: , Úlfhams saga
Ritstjóri / Útgefandi: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Umfang: 53
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Palæografi. B. Norge og Island, Nordisk kultur
Umfang: 28:B
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Lýsingar í íslenskum handritum á 15. öld, Gripla
Umfang: 27
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: , Icelandic illuminated manuscripts of the middle ages
Umfang: 7
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans
Titill: , En god bøn
Umfang: s. 52-58
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Skírnir, Nokkur íslensk handrit frá 16. öld
Umfang: 106
Höfundur: Jón Samsonarson
Titill: , Ljóðmál. Fornir þjóðlífshættir
Umfang: 55
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Saga heilagrar Önnu
Ritstjóri / Útgefandi: Wolf, Kirsten
Höfundur: Wolf, Kirsten
Titill: Margrétar saga II, Gripla
Umfang: 21
Titill: , Alfræði íslenzk. III. Landalýsingar
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kr.
Umfang: 45
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: , Ritun Reykjafjarðarbókar. Excursus, bókagerð bænda
Umfang: s. 120-140
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: The localisation and dating of medieval Icelandic manuscripts, Saga book
Umfang: 25
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Bókagerð Ara lögmanns Jónssonar, Gripla
Umfang: 19
Höfundur: Ásdís Egilsdóttir
Titill: Handrit handa konum, Góssið hans Árna
Umfang: s. 51-61
Höfundur: Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Titill: Marginalia in AM 510 4to, Opuscula XVII
Umfang: s. 209-222
Lýsigögn
×

Lýsigögn