Manuscript Detail
AM 114 8vo
View ImagesKjalnesinga saga Jökuls þáttur Búasonar; Iceland, 1661
LATIN SMALL LETTER O WITH CURLSpecial character shown similar to its original form.
Contents
“Hér byrjar söguna af Búa Íslendingi hinum einráða”
“Helgi bjólan son Ketils flatnefs …”
“… er mikil ætt frá honum komin.”
“Og lúkum vér þar Kjalnesinga sögu.”
“Hér eftir byrjast sagan af Jökli Búasyni.”
“Jökli þótti nú svo illt verk sitt …”
“… og lýkur svo hér frá Jökli að segja.”
“Anno 1661, þann 4.ða nóvember.”
Blað 22v var upprunalega autt en á það hefur verið ritað með yngri hendi, m.a. “Hallur Bjarnason á þessa bók með réttu”
Physical Description
- Blaðmerkt er ýmist með blýanti eða bleki 1-22 (aðeins eru merkjanlegar leifar af blaðnúmeri blaðs 22).
Þrjú kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-22, 3 tvinn.
- Með hendi Brynjólfs Jónssonar. Fljótaskrift.
- Á blaði 22v kemur nafnið “Hallur Bjarnason” ítrekað fyrir í tengslum við eignarhald hans á bókinni sem hann segist eiga “með réttu og enginn annar”. Tvær dagssetningar má greina; annars vegar neðst á blaðinu “17. apríl” án árs og svo fyrir miðju blaði “30. aprilis, anno 1665.”
Band er frá mars 1977. Strigi er á kili og hornum, strigaklæðning. Kver eru saumuð á móttök.
- Seðill (155 mm x 104 mm) með hendi Árna Magnússonar: “Ur qvere Halldors Þorbergssonar er Mag. Biorn liedi mier, þar ä var Sniosqvædi, Kotludræmum, Annar partur Eddu. Grænlandz saga Biorns ä Skardzä og fleira rusl.”
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.
History
Handritið er skrifað á Íslandi árið 1661 (á blaði 22r er dagsetningin 4. nóvember 1661).
Í handritinu voru áður ennfremur Snjáskvæði, Kötludraumur, annar partur Eddu, Grænlands saga Björns Jónssonar á Skarðsá og fleira (sjá seðil).
Hallur Bjarnarson átti handritið 1665 (sjá blað 22v), en Árni Magnússon fékk það að láni hjá mag. Birni og segir það úr kveri Halldórs Þorbergssonar (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. júní 1977.
Additional
Viðgert og innbundið á verkstæði Birgitte Dall í mars 1977. Eldra pappaband fylgir með handritinu í öskju.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||