Manuscript Detail
AM 111 8vo
View ImagesUm Guðmund Arason biskup; Iceland, 1600-1699
Contents
Um Guðmund Arason biskup
“Um Guðmund biskup”
“Þá liðið var frá hingaðburð …”
“Gunnlaugur Ormsson með eigin hendi.”
Nokkrar greinar um Guðmund biskup Arason góða.
Aftast eru þrjár vísur.
Vantar inn í textann vegna þess að blöð hafa glatast.
Physical Description
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bláu bleki 1-6.
Eitt kver, 3 tvinn.
- Blöð vantar í handritið milli bl. 3 og 4 (líklega 2 blöð).
- Dökkir blettir á bl. 6r.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 125-130 mm x 85-90 mm.
- Línufjöldi 20-22.
Með hendi Gunnlaugs Ormssonar (sbr. bl. 3r neðanmáls), blendingsskrift.
Árni Magnússon bætti titlinum við á seðil sem festur var við kápu (eldra band).
Band frá því í júlí 1975 (163 mm x 125 mm x 11 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúki. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Eldra band, pappírskápa með marmaramynstri frá s.hl. 18. aldar. Blár safnmarksmiði á kili.
- Fastur seðill (144 mm x 97 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril: “komid til min 1707. fra Arna Sigurdsyne ä Grund i Skoradal.”.
- Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
History
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 398.
Árni Magnússon fékk frá Árna Sigurðssyni á Grund í Skorradal árið 1707 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1976.
Additional
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1975. Eldra band fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund |









