Manuscript Detail
AM 84 8vo
There are currently no images available for this manuscript.
Páls saga postula hin meiri; Iceland, 1540-1560
Contents
Páls saga postula hin meiri
“Vér höldum hátíð í dag …”
“… af amnía secula seculorum. Amen”
“Hér lýkur [trú(?)] sögu Páls postula.”
Blöð 1, 54-55 eru upprunalega auð.
Physical Description
Síðari tíma blaðmerking með bleki: 1-55.
Samtals 7 kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 49-55, 3 tvinn + 1 stakt blað.
Fremstu blöðin eru skítug og slitin, einkum blað 2r.
Bókin er skæld og hefur gengist til; kápan skýlir blöðunum ekki að fullu þar sem hún er mjórri og hafa blaðbrúnir sumra blaðanna bognað af þeim sökum.
- Leturflötur er ca 98-104 mm x 65-70 mm.
- Línufjöldi er á bilinu 19-20.
- Kaflaskipting. Fyrirsagnir og upphafsstafir eða eyður fyrir slíkt sýna kaflaskil (sjá t.d. blað 11v).
Skrifari óþekktur. Léttiskrift.
Litaðir upphafsstafir eða leifar þeirra fremst í handritinu (sjá t.d. blöð 3r og 7v).
Litaðir upphafsstafir eða fylltir og skreyttir með mynd eða flúri (sjá t.d. blöð 2r, 23v-24r).
Leifar af rauðum fyrirsögnum fremst í handritinu (sjá t.d. blöð 3r og 6v).
Strikað í stafi með rauðu bleki á stöku stað, t.d. á blaði 7r.
Á blöðum 8r, 26r, 28r, 32r, 34r, 38r, 41r, 42r, 47r og 51r eru rissaðar fígúrur, laufmynstur o.þ.h. (hægra horn blaða, neðst).
Á blöðum 54-55 er pennakrot. Þar má lesa nokkur nöfn. Nafn Gísla Þorkelssonar kemur fyrir á blaði 54v, Guðmundar Thorsteinssonar og Styrbjarnar Thorsteinssonar á blaði 55v (sjá: Ferill).
Kápa (140-145 mm x 90-95 mm x 25 mm) úr ósútuðu skinni (sjá nánar: Ástand).
Seðill með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um aðföng.
History
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett ca 1550 (sjá ONPRegistre, bls. 466), en til loka 15. aldar í Katalog II, bls. 384.
Árni Magnússon fékk handritið frá Magnúsi Jónssyni skólameistara frá Leirá (sjá seðil), en sr. Árni Ólafsson að Hálsi í Álftafirði hafði sent honum bókina til Kaupmannahafnar þegar hann var þar stúdent. Séra Árni hafði fengið handritið hjá Oddi Gíslasyni í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í Kirkjubæjarkirkjusókn. En faðir hans, Gísli Þorkelsson bóndi, átti það (sjá AM 435 a 4to, blöð 15v-16r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1984.
Additional
Tekið eftir Katalog II, bls. 384 (nr. 2287). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 9. janúar 1890. ÞS skráði 29. janúar 2002. VH jók við og lagfærði skráningu skv. reglum TEI P-5, 13. júlí 2011.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| ONPRegistre | |||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||









