Manuscript Detail
AM 48 8vo
There are currently no images available for this manuscript.
Lög; Iceland, 1375-1400
Contents
Jóhannesarguðspjall
“plenvm gratıe et verıtatıſ”
Einungis upphafið.
Mynd af Kristi á krossinum með Maríu og Jóhannes fyrir neðan.
Kristinréttur Árna biskups
Á undan fer trúarjátningin.
Um bannsverk
Sextán bannsverk.
Biskupa statútur
Ásamt fleiri kirkjulegum ákvörðunum.
Jónsbók Saktal ór lögbók Íslendinga
Einungis hluti bókarinnar.
Lagaformálar
Á undan fara tvö lagaákvæði, um melrakkaveiðar og um pútur.
Réttarbætur
Ein frá Eiríki konungi og þrjár frá Hákoni konungi (13.-14. öld).
Um ósæran eið og rangan
Frá ca 1400.
Þessum málum má eigi appellera
“Þeſſum malum ma eıgı appellera”
Skipan Péturs biskups um ljóstolla
Frá 15. öld.
Latnesk undanþága
Frá ca 1500.
Bl. 55v er að mestu leyti autt.
Jónsbók
“er ætlað karllmannı”
Einungis hluti af Framfærslubálki, 1. kafla.
Bl. 56v er að miklu leyti autt, en þó sýnist vera þar særingar, sumpart með leyniletri.
Physical Description
- Letrið er nokkuð máð.
- Rifur á stöku stað.
Rauðir og grænir upphafsstafir.
Rauðar fyrirsagnir.
Band frá mars 1976.
- Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar og einn með hendi Þórðar Þórðarsonar.
- Lýsing Jóns Sigurðssonar fylgir í öskju með handritinu.
History
Bl. 2r(3)-53v(106)15 eru tímasett til loka 14. aldar, bl. 53v(106)16-26 og 56r(111) til um 1400 og bl. 54r(107)-55r(109)3 til 15. aldar (sjá ONPRegistre, bls. 465), en í Katalog II, bls. 356, er allt handritið tímasett til síðari helmings 14. aldar.
Árni Magnússon fékk handritið til eignar frá Pétri Ásmundssyni á Ketilsstöðum á Völlum í Fljótsdalshéraði árið 1708 (sjá seðil fremst). Faðir hans, Ásmundur Jónsson, hafði átt það en á undan honum séra Einar Þorvarðarson, en bókina galt Einar Styrbjörnsson honum í tíund af Bessastöðum árið 1631 (bl. 55v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. maí 1977.
Additional
Tekið eftir Katalog II, bls. 356-57 (nr. 2246). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1909. ÞS skráði 14. janúar 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn hjá Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magússonar á Íslandi, sem Jóhanna Ólafsdóttir tók 10. nóvember 1998.
- Filma á Stofnun Árna Magnússonar frá 10. nóvember 1998, í öskju 456.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| ONPRegistre | |||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||