Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 946 g 4to

Finnboga saga ramma ; Danmörk, 1800-1883

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-82r (bls. 1-163))
Finnboga saga ramma
Titill í handriti

Sagan af Finnboga hinum ramma.

Upphaf

Ásbjörn hét maður. Hann var kallaður dettiás …

Niðurlag

… þar til er þeir staðfestu ráð sitt og þóttu allir mikilhæfir menn.

Baktitill

Og lýk ég þar Finnboga sögu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír. Á eldra saurblaði er vatnsmerki; múrsteinshleðsla umkringd laufskrúði.
Blaðfjöldi
i + (i + 84 blöð) + i (275 mm x 223 mm). Blöð 82v-84v eru auð.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 1-163; blaðsíður 164-168 eru ómerktar.
  • Tvíblöðungur (seðill) sem skotið hefur verið inn á milli blaða 82v-83r er ranglega felldur inn í blaðsíðutal og merktur 165-167 (sjá nánar um fylgigögn).

Kveraskipan

Tuttugu og eitt kver.

  • Kver I: blöð 1-4; 2 tvinn.
  • Kver II: blöð 5-8; 2 tvinn.
  • Kver III: blöð 9-12; 2 tvinn.
  • Kver IV: blöð 13-16; 2 tvinn.
  • Kver V: blöð 17-20; 2 tvinn.
  • Kver VI: blöð 21-24; 2 tvinn.
  • Kver VII: blöð 25-28; 2 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 29-32; 2 tvinn.
  • Kver IX: blöð 33-36; 2 tvinn.
  • Kver X: blöð 37-40; 2 tvinn.
  • Kver XI: blöð 41-44; 2 tvinn.
  • Kver XII: blöð 45-48; 2 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 49-52; 2 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 53-56; 2 tvinn.
  • Kver XV: blöð 57-60; 2 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 61-64; 2 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 65-68; 2 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 69-72; 2 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 73-76; 2 tvinn.
  • Kver XX: blöð 77-80; 2 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 81-84; 2 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 130 mm x 170 mm.
  • Línufjöldi er ca 15.
  • Textaflötur nær aðeins yfir ca hálft blað; fyrir neðan hann er gert ráð fyrir lesbrigðum (sjá t.d. blöð 17v-18r).
  • Hugsanlega hefur verið brotið upp á blöð til að afmarka leturflöt við ytri spássíu.
  • Kaflatal 1-43. Kaflanúmer eru ýmist fyrir framan upphafsorð í kafla (sbr. blað 2r) eða fyrir framan fyrirsögn þar sem hún er til staðar (sbr. 33v).

Ástand

  • Blek úr lesbrigðatexta hefur smitast á mótliggjandi blað; sömuleiðis bókstafir sem ákvarða hvar um lesbrigði er að ræða í texta. Blekið er ekki það sama og í textanum almennt.
  • Innra tvinnið í kveri XIV (blöð 54r-55v) er tekið að losna.

Skrifarar og skrift

  • Með einni hendi. Skrifari er óþekktur.
  • Húmanísk skrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Athugasemdir og leiðréttingar eru víða á spássíum (sbr. t.d. blöð 2v og 4v-5r)

Band

Band (285 null x 245 null x 25 null) er frá 1987.

Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á kili og hornum. Kver eru saumuð á móttök.

Til 1987 voru hlutar f-g bundnir með AM 946 a-e 4to.Ný saurblöð; eitt hvoru megin.

Fyrir framan söguna er blað merkt g (hér skráð sem saurblað (i)); þar kemur auk þess fram blaðafjöldi og hvenær Kålund gekk frá handritinu til skráningar.

Fylgigögn

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn fyrir Det Arnamagnæanske legat (Árnasjóð) og tímasett ca 1800-1883, en til 19. aldar í  Katalog II , bls. 272.

Það er skrifað eftir AM 132 fol. (sbr. athugagrein á blaði 1r).

Ferill

Handritið kom í Det Arnamagnæanske Institut frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 31. mars 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 30. júní 2009; lagfærði í janúar 2011, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. ágúst 1909. Katalog II , bls. 272 (nr. 2078).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Mette Jacobsen í janúar 1987. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn