Gull-Þóris saga (viðbætir […])
„Í miðjum 10. kapitula vantar í mörg exemplaría …“
„… Ragnars eins og Ragnar fyrirsagði honum og hér var áður sagt.“
Eyðufyllingar í Gull-Þóris sögu: Auk styttri eyðufyllinga í kafla 10 og 17 eru tvær útgáfur af niðurlagi sögunnar, annar ófullgerður.
„Nockur nomina propria úr Gull-Þóris sögu“
„Grímkellsstaðir eru fyrir utan Gröf á Hallsteinsnesi …“
„… svo hann numdi þar land.“
„Þessar athugasemdir eru skrifaðar eftir sr. Birni Hjálmarssyni í Tröllatungu af BBenediktsson árið 1832.“
Blaðsíðumerking 1-11 (bls. 12 er ómerkt).
Eitt kver. Saurblöð tilheyra kverinu.
Með hendi Brynjólfs Benedictsen. Snarhönd en fljótaskriftareinkennum bregður þó fyrir, s.s. e-i og r-i á blaði 1r og víðar.
Heiti sögunnar er ritað á saurblað 2r Gull-Þóris saga (viðbætir [..]).
Band (215 null x 183 null x 6 null) er frá árunum 1880-1920.
Strigi er á kili og hornum, pappírsklæðning. Blár safnmarksmiði er á kili.
>Handritið er skrifað á Íslandi en skrifarinn Brynjólfur Benedictsen ársetur uppskrift sína árið 1832.
Handritið kom frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.
Á titilsíðu (öðru saurblaði) stendur fyrir ofan titil Bogi Benediktsson á Staðarfelli (1846).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. júlí 1985.
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.