Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 944 4to

Þórðar saga hreðu ; Ísland, 1700-1799

Titilsíða

Historia Theodori Hredu i Terriculamenti ([..] Midfiördensium)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-48v)
Þórðar saga hreðu
Titill í handriti

Saga af Þórði hreðu

Upphaf

Þórður hét maður í Noregi og var son Hörða-Kára …

Niðurlag

… og höfum vér ei meira heyrt sagt frá honum með sanni og lúkum vér hér sögu hans og fyrrskrifaðra manna.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 48 blöð (201 mm x 160 mm). Blað 48r er autt að einum þriðja. Blað 48v er autt
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með blýanti 1-48.

Kveraskipan

Sex kver.

  • Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16; 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24; 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32; 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40; 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48; 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (160-165 mm x 120-125 mm).
  • Línufjöldi er ca 19-20.
  • Leturflötur er víða afmarkaður við innri og ytri spássíu með línum sem dregnar eru með þurroddi.
  • Kaflanúmer eru á spássíu 1-33 (sjá t.d. blað 46r).
  • Griporð (sjá blöð 34v-35r).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur.
  • Fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Titill á saurblaði: Historia Theodori Hredu.

Band

Pappaband (208 null x 168 null x 8 null).

Bandið er klætt pappír með rauðu og gylltu, köflóttu mynstri.

Fylgigögn

  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 18. aldar í  Katalog II , bls. 270.

Ferill

Það kom í Det Arnamagnæanske Institut frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. júlí 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 5. júní 2009, lagfærði í janúar 2011.  ÞS skráði 9. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. ágúst 1909. Katalog II , 270 (nr. 2076).

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn