Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 937 4to

Flóamanna saga ; Ísland, 1685

Titilsíða

Floamannorum et in specie de Thorqilso Theodorifilio dicto Orrabeini Nutricio.

Innihald

1 (1r-25v)
Flóamanna saga
Titill í handriti

Sagan af nokkrum landsmönnum Sunnlendinga; sérdeilis Þorgils Þórðarsyni kölluðum orrabeinafóstra; nokkrum Flóamönnum.

Upphaf

Haraldur konungur Gullskeggur réð fyrir Sogni …

Niðurlag

… föður Hákonar, föður Jóns og lýkur svo sögu þessari.

Tungumál textans
íslenska
1.1 (25v)
Íslendinga ætlar val
Skrifaraklausa

Byrjaðist hennar skrifið á 24. aprilis en enduð í 1(?) mánuði 1685 að Hvammi í ABS af GSS.

Athugasemd

Sjá blað 25v.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 25 blöð (190 mm x 150 mm).
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með blýanti 1-25.

Kveraskipan

Fjögur kver.

  • Kver I: blöð 1-6; 3 tvinn.
  • Kver II: blöð 7-12; 3 tvinn.
  • Kver III: blöð 13-18; 3 tvinn.
  • Kver IV: blöð 19-25; 3 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi er ca 27-30.
  • Síðutitlar.
  • Griporð.
  • Kaflaskipting i-xxxiiii.

Ástand

  • Blöð eru sum hver blettótt og skítug (sjá t.d. blöð 1r og 12 ).
  • Síðutitlar eru víða skertir vegna afskurðar blaða (sjá t.d. 19r-25v).

Skrifarar og skrift

Skrifað af GSS í Hvammi 1685 (sbr. blað 25v), blendingsskrift.

Band

Band (190 null x 155 null x 5 null) er í pappírskápu með blómamynstri.

Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

  • Þrír pappírsstrimlar með textaleifum eru límdir á aftara kápuspjald innanvert.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi með hendi GSS í Hvammi 1685 (sjá blað 25v) og þannig er það tímasett í  Katalog II , bls. 269.

Ferill

Handritið kom í Det Arnamagnæanske Institut frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. júlí 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 8. júní 2009; lagfærði í janúar 2011>.  ÞS skráði 7. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 27. ágúst 1909. Katalog II; bls. 269 (nr. 2069).

Viðgerðarsaga

Viðgert í Kaupmannahöfn í desember 1983.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Flóamanna saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: 56
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn