Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 929 4to

Sögur og kvæði ; Ísland, 1780

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-120v)
Egils saga Skallagrímssonar
Titill í handriti

Hér byrjast sagan af Eigli Skallagrímssyni. Kap. 1.

Upphaf

Maður er nefndur Úlfur …

Niðurlag

… og settist í bú að Borg og bjó þar til elli og kom margt manna frá honum og lýkur svo þessari sögu.

Skrifaraklausa

Enduð þann 2. maí anno 1780.

Athugasemd

Texti hefur skaddast við efri spássíu blaða 2-8. Sömuleiðis hefur texti við ytri spássíu blaðs 7 skerts þar sem morknað hefur úr jöðrum þess.

Kaflaskipting: i-lxv.

2 (121r-132v)
Um Höfuðlausn
Titill í handriti

Drápa Egils Skallagrímssonar ort og flutt í Jórvík á Norðimbralandi, anno Christi 934

Upphaf

Hér skulu sýnast lofvísur Egils Skallagrímssonar …

Niðurlag

… það vill sér til setja.

2.1 (123v-131v)
Höfuðlausn
Upphaf

Vestur komum ver …

Niðurlag

… eða vili tára.

Skrifaraklausa

Skrifað á Skarðsá í Skagafirð, i xiii Martii 1634, Björn Jónsson manu Exscriptoris

Athugasemd

Skýringar Björns Jónssonar á Skarðsá við Höfuðlausn fylgja kvæðinu.

3 (133r-133v)
Doct. Olai Wormii Explicatio in Vili Tára
Höfundur
Upphaf

Vili Tára sive …

Niðurlag

… ex voto succedant

Athugasemd

Skýringar Ole Worm á orðunum vilji tára í Höfuðlausn.

4 (133v-134v)
Sonatorrek
Titill í handriti

Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar

Upphaf

Mjög erum tregt tungu að hræra …

Niðurlag

… og óhryggur heljar bíða.

Skrifaraklausa

Endir.

Athugasemd

Blað 135 er autt.

Efnisorð
5 (136r-178v)
Edda
Titill í handriti

Edda Snorra Sturlusonar

Upphaf

Almáttigur Guð, skapaði himin og jörð …

Niðurlag

… fyrir utan höllina. Eftir þessari sögu hefur ort Eylífur Goðrúnarson, Þórsdrápu.

Athugasemd

Óheil. Nær að Þórsdrápu.

Kvæðið er með skýringum Jóns Guðmundssonar lærða, Samantektir um skilning á Eddu.

Sumstaðar eru skemmdir inn við mitt tvinn og skerða þær á stöku stað texta lítillega (sbr. t.d. á blöðum 172 og 174v-178v).

Efni er kaflaskipt og merktir eru kaflar i-xxvii; frásagnir þar á eftir eru auðkenndar með fyrirsögnum og/eða ónúmeruðum kaflamerkjum.

6 (178v-181v)
Styrbjarnar þáttur Svíakappa
Titill í handriti

Hér hefur þátt Styrbjarnar Svíakappa

Upphaf

Frá því er að segja að Ólafur og Eyrekur kóngur réðu Svíaveldi …

Niðurlag

… Og er hér nú ei meira af þessum þætti uppskrifað.

Efnisorð
7 (182r-190v)
Völuspá
Titill í handriti

Völvuspá

Upphaf

Hljóðs bið ég allar helgar kindur …

Niðurlag

… ársköp setur þau er vara skulu.

Athugasemd

59 erindi.

Skýringar Björns Jónssonar á Skarðsá eru við fyrstu 19 vísurnar.

8 (191r-209r)
Eiríks saga rauða
Titill í handriti

Hér hefst saga af Eiríki rauða. Kap. 1

Upphaf

Óleifur hét konungur er kallaður var Óleifur hvíti …

Niðurlag

… Og endar hér svo söguna af Eiríki hinum rauða.

Athugasemd

Kaflaskipting: i-ix.

9 (209v)
Bjarnar saga Hítdælakappa
Titill í handriti

Hér hefur sögu Bjarnar Hítdælakappa

Upphaf

Á dögum Eiríks kóngs blóðaxar …

Niðurlag

… að Hítarnesi á Íslandi er hét …

Athugasemd

Einungis upphaf sögunnar.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 209 + i blöð (185 mm x 159 mm). Blað 135 er autt.
Tölusetning blaða

  • Tvöföld blaðmerking með blýanti. Blaðmerkt er 1-209; a) í hægra horn efst, b) fyrir miðju blaðs.

Kveraskipan

Tuttugu og sjö kver.

  • Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16; 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-25; 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver IV: blöð 26-31; 3 tvinn.
  • Kver V: blöð 32-41; 5 tvinn.
  • Kver VI: blöð 42-47; 3 tvinn.
  • Kver VII: blöð 48-56; 4 tvinn + 1stakt blað.
  • Kver VIII: blöð 57-64; 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 65-72; 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 73-80; 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 81-88; 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 89-96; 4 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 97-104; 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 105-112; 4 tvinn.
  • Kver XV: blöð 113-120; 4 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 121-128; 4 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 129-135; 3 tvinn + 1stakt blað.
  • Kver XVIII: blöð 136-143; 4 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 144-151; 4 tvinn.
  • Kver XX: blöð 152-163; 6 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 164-169; 3 tvinn.
  • Kver XXII: blöð 170-177; 4 tvinn.
  • Kver XXIII: blöð 178-185; 4 tvinn.
  • Kver XXIV: blöð 186-190; 2 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver XXV: blöð 191-198; 4 tvinn.
  • Kver XXVI: blöð 199-204; 3 tvinn.
  • Kver XXVII: blöð 205-209; 2 tvinn + 1stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (140-150 mm x 130-135 mm).
  • Línufjöldi er ca 20-24.
  • Leturflöturinn er ýmist afmarkaður með þurroddi eða með blýanti (sjá t.d. blöð 153v-154v).
  • Griporð eru víða, þó ekki allstaðar (griporð eru t.d. á blaði 64v en ekki á blaði 65r).
  • Sögur Egils (sjá t.d. blað 28v) og Eiríks rauða (sjá t.d. blað 199r) eru kaflaskiptar sem og Edduefnið (sjá t.d. blöð 143v-144r).

Ástand

Sumstaðar eru skemmdir á blöðum:

  • Texti hefur t.d. skaddast við efri spássíu blaða 2-8.
  • Texti við ytri spássíu blaðs 7 hefur skerts þar sem morknað hefur úr jöðrum þess.
  • Sjá má skemmdir inn við mitt tvinn sem skerða texta lítillega (sbr. t.d. á blöðum 172 og 174v-178v).
  • Bleksmitun (sjá t.d. á blöðum 56v-57r).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari I, aðalhönd: blöð 2r-134v; 179r-181v; 191r-209v. Fljótaskrift.

.

  • Skrifari III: blað 1. Húmanísk skrift (snarhönd).

Skreytingar

Skrifari I:

  • Skrifari I ritar fyrstu línu í kafla yfirleitt með stærra og settara letri en letur megintexta (sjá t.d. blað 10v-11r).

  • Hann ritar upphafsstaf í upphafi kafla oftast stærri dráttum, fyllir hann örlítið og skreytir með látlausu pennaflúri (sjá t.d. á blaði 37v).

Skrifari II:

  • Skrifari II rauðlitar stafi og orð á blöðum 136-146.

  • Fylltir stafir eru í fyrirsögn Völuspár á blaði 182.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Band (199 null x 185 null x 50 null) er frá 1983.

Spjöld eru klædd fínofnun striga. Grófari strigi er á kili og hornum.

Kver eru saumuð á móttök og saurblöð tilheyra þessu bandi.

Eldra band, tréspjöld klædd bókfelli; leifar af bréfum og bréfsneplum úr bandi, fylgja í sérstakri möppu. Einnig ljósmyndir af bandi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi 1780 (sjá ártal á blaði 120v) og er tímasett þannig í Katalog II, bls. 266.

Ferill

Það kom í Árnasafn frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883. Það hefur e.t.v. verið í eigu Björns Arnfinnssonar á Kletti í Gufudalssveit, eða a.m.k. við norðanverðan Breiðafjörð, á fyrri hluta 19. aldar. (Einar G. Pétursson 1998).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. maí 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 8. júní 2009; lagfærði í janúar 2011.  ÞS skráði 26. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. ágúst 1909. Katalog II , bls. 266-267 (nr. 2061).

Viðgerðarsaga

Lagfært og bundið af Birgitte Dall í október 1983.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn