Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 753 1-2 4to

Edda ; Ísland, 1690-1710

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
19 blöð (203-205 mm x 162-165 mm). Blað 19 er autt og blað 18v er autt að hálfu.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með blýanti 1-18; blað 19 er ómerkt.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: blöð 1-4; 2 tvinn.
  • Kver II: blöð 5-13; 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver III: blöð 14-19, 3 tvinn.

Band

Pappaband (212 null x 171 null x 10 null). Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Fjórir fastir seðlar (fremst í handriti) með hendi Árna Magnússonar:

  • Á seðil (a) (203 mm x 149 mm) er ritaður titill handrits og númer Skallda, vulgo dicta Rectius pars Eddæ. [yfirstrika': aliqvot exemplaria 000000 ex Svecia] No 753.
  • Á næstu tvo seðla (b og c) eru ritaðar upplýsingar um handritsbrot fengið frá Þorsteini Ólafssyni á Oddsstöðum en Þorsteinn segist hafa skrifað það upp eftir gömlum pappírsblöðum rituðum með hendi sr.Odds Oddssonar á Reynivöllum. Ekki er ljóst við hvaða handrit þessar upplýsingar eiga.
  • Seðill b (165 mm x 105 mm) Allt eins exemplar og þetta, og eins mancum framan til, á Jón prentari Snorrason í Miklaholti. Segir hann það skrifað vera eftir exemplari Páls Jónssonar (lögmanns), er þá var skólameistari, en Páls lögmanns exemplar meinast að hafa skrifað Gísli Einarsson eftir exemplari komnu úr Svíaríki. Páll léði sitt exemplar Sigurði Ingimundarsyni og rotnaði það þar og skemmdist. Þó segist Jón hafa enn nú slitur þar af er til sín komið hafi eftir Sigurð, dauðann minnir mig. Hvorki þarf ég að sjá þetta slitur né hitt Jóns prentara exemplar, sem úr því er tekið, því það er allt eins og þetta mitt, contuli.
  • Seðill c (200 mm x 160 mm) Þetta fragment hefi ég fengið frá Þorsteini Ólafssyni á Oddsstöðum. Hann segist það uppskrifað hafa eftir gömlum pappírsblöðum rituðum med hendi sr. Odds Oddssonar á Reynivöllum, og er í fórum nefnds sr. Odds. Hafi þar á ekkert meira verið en þetta sem hann mér uppskrifað fékk. Hann segir og að þessi gömlu pappírsblöð sr. Odds Oddssonar hafi sums staðar trosnuð verið og sé hann því eigi viss um að þetta, sem hann mér fékk, sé alls staðar rétt. Þau gömlu pappírsblöðin með hendi sr. Odds Oddssonar segist hann fundið hafa í blaðarusli eftir sr. Odd Jónsson á Reynivöllum.
  • Seðill (d) (70 mm x 52 mm) er með upplýsingum um aðföng Fengið 1703 frá Grími Einarssyni [yfirstrikað: undir] í Holti undir Eyjafjöllum..
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið árið 1703, frá Grími Einarssyni í Holti undir Eyjafjöllum (sbr. seðil (d)) sem nú stendur framan við fremra handritið, en var áður fastur við aftara handritið, skv. lýsingu Kålunds (sbr. Katalog (II) 1894:177 ).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. nóvember 1992.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 15. júní 2009,

  DKÞ skráði handritið  11. desember 2003.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 24. nóvember 1888. Katalog II> ,bls.177 (nr. 1869).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Yfirfarið og lagfært í október 1992.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Hluti I ~ AM 753 1 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-4v)
Fyrsta og önnur málfræðiritgerðin
Titill í handriti

Um bókstafa ritan

Upphaf

Þau fornu skáldin og ritmeistarar …

Niðurlag

… að lyktum lífs þessa í sæmd og sælu með Guði og hans ástvinum. Amen. Finis.

Athugasemd

Fyrsta og önnur málfræðiritgerð, styttar.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
4 blöð (203 mm x 163 mm).
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með blýanti 1-4 (hluti af heild 1-18).

Kveraskipan

Eitt kver.

  • Kver I: blöð 1-4; tvö tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165-175 null x 140 null.
  • Línufjöldi er ca 27-29.
  • Griporð.

Skrifarar og skrift

  • Með einni hendi.
  • Fljótaskrift.

Uppruni og ferill

Uppruni

Hluti II ~ AM 753 2 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-14v)
Edda
Höfundur

Snorri Sturluson

Upphaf

… Það gera hörpurnar …

Niðurlag

… en í öðru af hinu fjórða alhendingar og [..]hent.

Athugasemd

Eftir Uppsala-Eddu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
15 blöð (205 mm x 162-165 mm). Blað 18 er autt að hálfu; blað 19 er autt.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt með blýanti 5-18 (hluti af heild 1-18), blað 19 er ómerkt.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: blöð 5-13; 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver II: blöð 14-19; 3 tvinn

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (175-180 mm x 130 mm).
  • Línufjöldi er ca 24-26.
  • Kaflaskipting ii-xiv (upphaf fyrsta kafla vantar).
  • Griporð (sjá t.d. 16v-17r).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur.
  • Ýmist er skrifað með kansellískrift eða fljótaskrift (sjá t.d. 16v-17r).

Skreytingar

Á blaði 5v er bókstafahringur og á blaði 6v-7r er tafla með bókstöfum (samhljóðum).

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1700 (sbr. Katalog (II)1894:177 ).

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn