Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 622 4to

Helgikvæði ; Ísland, 1549

Athugasemd
Á fyrstu 11 blöðunum eru stutt kvæði með nótnaskrift o.fl. á latínu, dönsku, þýsku og íslensku. Ef til vill hefur þeim verið bætt við þegar handritið var bundið 1549. Margir textarnir eru skertir vegna skemmda á handritinu.
Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1v)
Enginn titill
Upphaf

Ave funda Dauidis que Goliam perstrauerat …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
2 (1v)
Enginn titill
Upphaf

Congaudeat tua fidelium …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
3 (1v-2r)
Enginn titill
Upphaf

O Maria generosa mater regis et filia …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
4 (2r)
Enginn titill
Upphaf

Benedicite tres personas trinitatis …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
5 (2r-v)
Enginn titill
Upphaf

Diuinum mister[ooooo]odo declarat …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
6 (2v)
Enginn titill
Upphaf

Jesus Kristus nostra salus …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
7 (2v-3r)
Enginn titill
Upphaf

Vintur og frost það kemur með ís og horror …

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð
8 (3r)
Enginn titill
Upphaf

… með prís og decor …

Athugasemd

Fyrstu orðin hafa trosnað af.

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð
9 (3r)
Enginn titill
Upphaf

Pater dei lumen rei peruia …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
10 (3r-3v)
Enginn titill
Upphaf

Pu[oo] nobilis nascit rector ange …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
11 (3v-4r)
Enginn titill
Upphaf

Maria ros coelorus? flos …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
12 (4r)
Enginn titill
Upphaf

… fructife ooons oogoo fronduit et floris …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
13 (4r-4v)
Enginn titill
Upphaf

Cece? mundi gaudium ecce ialus gentrum …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
14 (4v)
Enginn titill
Upphaf

Auid quedam domina vallde potens et clava …

Athugasemd

Kvæðið endar á lágþýsku en er annars á latínu.

Tungumál textans
íslenska (aðal); þýska
Efnisorð
15 (5r)
Enginn titill
Upphaf

… dig vid din søn Christum …

Athugasemd

Fyrstu orðin hafa trosnað af.

Lútherskur sálmur.

Tungumál textans
danska
Efnisorð
16 (5r-5v)
Tafla yfir sunnudagaguðspjöll
Upphaf

Mors tua …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
17 (5v)
Um helgidaga ársins
Upphaf

Minnstu að [á] heilu árinu eru þrettán sunnudagar …

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð
18 (6r)
Skrá yfir bækur Biblíunnar
Titill í handriti

Bækur hins gamla lögmálsins

Athugasemd

Í þremur dálkum.

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð
19 (6v-7r)
Drykkjuvísa
Upphaf

Mihi est propositum in taberna mori …

Tungumál textans
latína
20 (7r-7v)
Enginn titill
Upphaf

Dies est laetitiæ in ortri regali …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
21 (7v-8v)
Lied von König Ludwig von Ungarn
Upphaf

Klecklick so wille wÿ heuenn an vnde syngenn …

Tungumál textans
þýska
22 (8v-9r)
Enginn titill
Upphaf

Sallat scolaris cotio in hoc commnio …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
23 (9r-10v)
Enginn titill
Upphaf

Amor patris et filii …

Tungumál textans
latína
Efnisorð
24 (10v-11r)
Enginn titill
Upphaf

Sol sol nastitur de virgine …

Athugasemd

Bl. 11 upprunalega autt utan 5 línur (4 nótnalínur og 1 texta) efst á rektósíðu.

Tungumál textans
latína
Efnisorð
25 (12r-21r)
Lilja
Titill í handriti

Hér hefur Lilju bróður Eysteins

Upphaf

Almáttugur Guð allra stétta …

Niðurlag

… víst ef léki á dominus tecum. Amen

Efnisorð
26 (21r-29r)
Milska
Titill í handriti

Hér hefur Rósu sem Sigurður blindur hefur kveðið

Upphaf

Faðir vor Kristur fríður hinn hæsti …

Niðurlag

… endann fel eg nú guði á hendi. Amen

Athugasemd

Röng yfirskrift.

Efnisorð
27 (29r-39r)
Rósa
Titill í handriti

Maríu vísur

Upphaf

Faðir og son á hæstum hæðum …

Niðurlag

… enda fel eg svo guði á hendi. Amen

Athugasemd

Óheil, vantar tvö bl. (frá erindi 109, línu 3-133, línu 6).

Síðari tíma fyrirsögn.

Efnisorð
28 (39r-45r)
Píslarkross
Upphaf

Græðarinn lýðs og landa …

Niðurlag

… svo endist vísan mín. Amen

Athugasemd

Kvæðið er kallað Píslarkross í  Katalog II 1894 og hjá  Jóni Þorkelssyni 1888:46

Efnisorð
29 (45r-46v)
Adams óður
Upphaf

Allra hlutanna er upphaf …

Niðurlag

… frá föður himna …

Athugasemd

Vantar aftan af.

Efnisorð
30 (47r-48r)
Ellikvæði
Höfundur
Upphaf

oooins lætur hún allan dofna …

Niðurlag

… um allan aldur alda. Amen

Notaskrá

Kvæðasafn 1922-27:251-256

Athugasemd

Vantar framan af.

Efnisorð
31 (48v-53v)
Píslargrátur
Titill í handriti

Krossgrátur

Upphaf

Faðir vor Kristur í friðinum hæsta …

Niðurlag

… guði í vald um aldir alda. Amen

Athugasemd

Á efri spássíu með 17. aldar hendi: Píslargrátur bps Jóns

Á eftir kvæðinu hefur texti verið skafinn burtu (neðri hluti bl. 53v).

Efnisorð
32 (54r-66v)
Gimsteinn
Höfundur

Hallur Ögmundsson

Titill í handriti

Hér hefur upp krossdrápu Halls prests

Upphaf

Heyr ilmanda hjartans yndi …

Niðurlag

… send um alla veröld án enda.

Athugasemd

Heiti kvæðisins kemur fyrir í lokaerindi.

Skrifarinn hefur víða bætt við klausum á latínu sem vísa til innihalds kvæðisins, einkum á neðri spássíu og í lokin.

Efnisorð
33 (66v-68r)
Maríuvísur
Höfundur

Hallur Ögmundsson

Titill í handriti

Maríu vísur Halls prests

Upphaf

Sælust sjóvar stjarna …

Niðurlag

… eg læt svo fræðið falla.

Athugasemd

Fyrirsögnin er ólæsileg en Árni Magnússon skrifar hana aftur á spássíu.

Efnisorð
34 (68r-73r)
Mikaelsflokkur
Höfundur

Hallur Ögmundsson

Titill í handriti

Hér hefur Michaelsflokk Halls prests

Upphaf

Óðar gef þú upphaf …

Niðurlag

… blífa nú og að eilífu.

Notaskrá

Kvæðasafn 1922-27:370-85.

Efnisorð
35 (73r-81v)
Nikulásdrápa
Höfundur

Hallur Ögmundsson

Titill í handriti

Hér hefur Nikulásdrápu Halls prests

Upphaf

Í nafni Guðs vil ég upphaf efna …

Niðurlag

… svo blífi þær að eilífu. Amen

Efnisorð
36 (81v-89v)
Náð
Höfundur

Hallur Ögmundsson

Upphaf

Heyr mildingur allra alda …

Niðurlag

… enda fel eg svo þér á hendi. Amen

Athugasemd

Heiti kvæðisins kemur fyrir í lokaerindi.

Efnisorð
37 (90r-90v)
Maríublóm
Höfundur

Hallur Ögmundsson

Titill í handriti

Vísur af o bone Jesú: hefur Hallur p. Ögmundsson erind[jn ort?]

Upphaf

Heyr mig, Jesú, hjálparinn mætur …

Niðurlag

… göfuglig hjálparbry[nja] …

Athugasemd

Einungis upphaf, endar í 11. erindi, 2. ljóðlínu.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 90 + i blöð (150-162 mm x 125-132 mm). Bl. 1r upprunalega autt.
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðsíðumerking með bleki, 1-178.

Kveraskipan

Ellefu kver, auk 6 stakra blaða og tvinns:

  • Kver I: 8 blöð, 4 tvinn.
  • 3 stök blöð.
  • Kver II: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver III: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver IV: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver V: 6 blöð, 3 tvinn.
  • Kver VI: 8 blöð, 4 tvinn.
  • 3 stök blöð
  • Tvinn: 2 blöð
  • Kver VII: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver VIII: 6 blöð, 3 tvinn.
  • Kver IX: 6 blöð, 3 tvinn.
  • Kver X: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver XI: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Stakt blað (leifar af aftasta kveri handritsins).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 112-117 mm x 92-95 mm.
  • Línufjöldi er að jafnaði 24.
  • Stafir víða dregnir út úr leturfleti.

Ástand

  • Á eftir bl. 38 vantar tvö blöð, á eftir bl. 46 vantar blað/blöð, einnig vantar aftan af handritinu.
  • Texti á neðri hluta 53v skafinn burt.
  • Texti sumra blaða skertur vegna fúa, einkum við kjöl.
  • Strikað yfir texta á 90r-v.

Skrifarar og skrift

Með hendi séra Gísla Jónssonar í Selárdal, síðar Skálholtsbiskups, síðléttiskrift.

Skreytingar

Spássíumynd af konu neðst á 49v.

Upphafsstafir kvæða pennaflúraðir, sums staðar með laufskreytingum og skreyttir með rauðu og grænu bleki, skrautlegastir á 1v, 12r, 21r, 29r, 48v, 56v, 66v.

Stórir pennaflúraðir upphafsstafir víða (sums staðar með laufskreytingum, annars staðar fylltir), skrautlegastir á 25v, 26v, 33v, 39r, 45r, 58v, 76v, 77r-v, 78v, 81v.

Fyrirsagnir oft rauðritaðar.

Krossar af ýmsum stærðum og gerðum víða á spássíum, t.d. 1v, 14r-18v, 23r-26r, 33r-37r, 51v, 56v, 57v-58v, 59v-60r, 75r-77v, 83r-86r.

Flúr á neðri spássíu 36v-37r, 59v, 63r, 65r, 69v, 87v.

Bendill á 2v.

Nótur

Nótur á 1r-5r, 6v-7v, 8v-11r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Band frá febrúar 1972 (182 mm x 155 mm x 80 mm). Leður á kili og hornum, pappaspjöld klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Saurblað í bandi. Handritið liggur í öskju.

Fylgigögn

Fimmtán fastir seðlar með hendi Árna Magnússonar:

  • Seðill 1 (159 mm x 105 mm) Frá Þórði Péturssyni á Hólmi, ég trúi til eignar. No 622. Bokin hefur til forna átt heima á Suður- Reykjum í Mosfellssveit.
  • Seðill 2 (126 mm x 98 mm) „Helga Gísladóttir sögð er á [eiga] þessa bók ... föður mínum Gísla Jónssyni p. anno Domini 1549.“ Þetta stendur framan á bókinni. Á spássíunni stendur á einum stað: „Ég á heima á Reykjum, segir skeiddan.“
  • Seðill 3 (160 mm x 110 mm) Hjá Þórði Péturssyni á Hólmi [nú hjá mér] bók í litlu 4to. Þar á var Odæ Latinæ, Danicæ, germanicæ; svenska vísan hún er sig svo löng. Mörg er mannsins pína. Hver ei sver ei sjálegt víf. Hæc manu recentiore. Lilja bróður Eysteins [yfirstrikað: Rósa Sigurðar blinda] (og) incipit: Faðir vor Kristur friður hinn hæsti, fyrr smíðandi áttir tíð. Þetta er Rósa. Maríuvísur: Faðir og son á hæstum hæðum. Eru langar. Græðarinn lýðs og landa. Allra hluta er upphafi orð: Ellikvæði Jóns Hallssonar. Píslargrátur biskups Jóns (kallast þar Krossgrátur, incipit: Faðir vor Kristur í friðinum Dæglur: gaf ég mig allan græðara mínum. Manu Recenti. Kvæði um Ólaf helga. Kötludraumur. Manu Recenti. Krossdrápa Halls prests. Er löng. Michaelisflokkur Halls prests. Michaelisdrápa Halls prests: Heyr mildingur allra alda.
  • Seðill 4 (159 mm x 106 mm) Hér hefur Rósu sem Sigurður blindur hefur kveðið. Absque dubio ad imitationem Liliu. [Fyrir neðan:] Bókin er komin til Þórðar Péturssonar á Hólmi, frá Suður- Reykjum í Mosfellssveit.
  • Seðill 5 (milli bl. 22v og 23r, 122 mm x 59 mm) Þessa Lilju hefi ég sjálfur uppskrifað, vantar að conferera. Hér hefur Lilju bróður Eysteins Einarssonar. Eins er öldungis ólæsilegt og eftir gátu alleina. En eitthvað hefir þar ritað verið.
  • Seðill 6 (165 mm x 106 mm) Í þessum pápísku kvæðum er margt plusqvam superstitiosum, og samt penitus impium. Eru þau gjörð skömmu fyrir reformationem, þá notitia var svo sem undir lok liðin á Íslandi.
  • Seðill 7 (122 mm x 81 mm) Þessi píslargrátur er afkópíeraður.
  • Seðill 8 (163 mm x 103 mm) NB. Ef biskup Jón er author [yfirstrikað: þessa kvæðis] Píslargráts, þá er það eldra en 1549 því það ártal stendur framan á bókinni. Mig minnir Björn á Skarðsá segi, biskup Jón hafi kveðið Píslargrát í Skálholti í fangelsi. Er það á þennan máta ekki satt.
  • Seðill 9 (137 mm x 106 mm) Hér voru inn á milli í bókinni: Dæglum partur með annarri hendi og nýrri en bókin. Illa skrifað. Ólafs konungs vísur með andstyggðar hendi. Ábótavísur með nýrri hendi viðvaningslegri. Kötludraumur með [yfirstrikað: sömu nýrri]. Ólík hendi sem á Dæglunum vantar við undan. Dæglurnar og hálfar Ólafs vísur, voru ritaðar á það gamla pergamentið, sem autt hafði verið látið aftan við Píslargrát. Eftirparturinn af Ólafs vísum og hitt annað var ritað á óhræsilegt pergament, sem hér hafði verið fest inn á milli arkanna, þegar bókin hefir umbundin verið, NB um bundin. Því sama slags var innfestingin á þessu [yfirstrikað: nýjaa] auka arki, sem á allri bókinni í þessu nýja, auki sem í hinum öllum.
  • Seðill 10 (98 mm x 81 mm) Þetta er það kvæði sem menn almennilega kalla Gimstein. Það heitir og svo með réttu, vide pag. m. 64. in calce Carminis.
  • Seðill 11 (134 mm x 104 mm) Bandið á bókinni mun vera sér, um de anno 1549, en bókin sjálf nokkru eldri, þó ekki miklu, sem af skriftinni er að sjá.
  • Seðill 12 (150 mm x 95 mm) Héðan frá er bókin afskrifuð út til enda.
  • Seðill 13 (158 mm x 107 mm) Hallur prestur author Krossdrápu eður Gimsteins hefur verið Ögmundsson, vide á þeim lausu blöðum bak í bókinni frá Hólmi sem Krossdrápa er á. Krossdrápa þessi er gjörð eftir 1400. Þar er í: Ur. og kóngur er simiis sequioris ævi notæ.
  • Seðill 14 (159 mm x 109 mm) Hér var í bókinni þessi heimsósómi (Mörg er mannsins pína) út til enda. Item með sömu hendi, annar heimsósómi (Hvað mun veröldin vilja) kveðin af Skáld-Sveini nokkrum. Þetta tvennt var rotið í hryggnum, og það síðara til stórskemmda. Varð svo ekki confererað. Það sem þar af var læsilegt confereraði ég með öðrum mínum exemplaribus úr kálfskinnsblöðum frá sr. Ólafi Gíslasyni, og eyðilagði svo þetta. Aftan við þessa tvo heimsósóma voru vísnagrey: Sver ei, svar ei sjálegt víf. Með andstyggðar hendi, sömu sem á Ólafs vísunum. Þær eru og héðan útteknar, uppskrifaðar og pergamentsblaðið eyðilagt.
  • Seðill 15 (161 mm x 106 mm) Hér aftan við var: Halls prests Ögmundssonar vísur af: O bone Jesús (kallast af auctore Maríublóm). Boðorðavísur, kveðið [kveðnar] af Gísla Jónssyni (er ekki nema nokkur vers framan af)†. Þessir tveir tractatus voru svo rotnir og defectueux að þeir voru víða ónýtir. Þó skrifaði ég það þar úr, sem læs[ileg]t var og heilt, og eyðilagði þá svo síðan.† Restin var burtrifin og voru þessir tveir tractatus með sömu hendi sem hitt fyrra faranda.

  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
  • Laus seðill með athugasemdum um nöfn í handritinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, nánar tiltekið í Selárdal í Ketilfjörðum, árið 1549 (1r, 68v).

Ferill

  • Árni Magnússon fékk frá Þórði Péturssyni á Hólmi (sjá seðil). Áður hafði Helga Gísladóttir átt handritið (1r) en það átti einhvern tíma heima á Suður-Reykjum í Mosfellsdal (sjá seðil fremst).
  • Á 43r og 47v er nafnið Guðbrandur Þórðarson, á 46v og 59v Páll Jónsson, á 48v Ísleifur Þórðarson og á 62r Jón Einarsson, e.t.v. fyrri eigendur handritsins.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. janúar 1988.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS uppfærði skv. reglum TEIP5 31. ágúst til 2. september 2009 og síðar.

ÞS skráði 4.-19. febrúar 2003.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. janúar 1890 ( Katalog II 1894:34-37 (nr. 1610) ).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í febrúar 1972. Eldra band fylgdi ekki.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 29. nóvember 1971.

Notaskrá

Höfundur: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Titill: DFS 67,
Umfang: s. 233-267
Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Íslenzk rit síðari alda, Munnmælasögur 17. aldar
Umfang: 6
Höfundur: Björn K. Þórólfsson
Titill: Kvantitetesomvæltningen i islandsk, Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 45
Höfundur: Einar G. Pétursson
Titill: Tvö skrif um Kötludraum, Gripla
Umfang: 26
Höfundur: Eiríkur Þormóðsson, Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: , Oddaannálar og Oddverjaannáll
Umfang: 59
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Gripla, Leiðbeiningar Árna Magnússonar
Umfang: 12
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Rósa Þorsteinsdóttir, Rósaleppar : þæfðir Rósu Þorsteinsdóttur fimmtugri 12. ágúst 2008
Umfang: s. 38-41
Höfundur: Guðrún Nordal
Titill: Góssið hans Árna, Helgubók
Umfang: s. 21-35
Höfundur: Gísli Sigurðsson
Titill: Gripla, Kötludraumur. Flökkuminni eða þjóðfélagsumræða?
Umfang: 9
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Ábóta vísur
Umfang: s. 173-183
Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: , Íslenzk fornkvæði. Islandske folkeviser
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 10-17
Titill: Vísnabók Guðbrands
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Torfason, Kristján Eiríksson
Höfundur: Jón Þorkelsson
Titill: Islandske håndskrifter i England og Skotland, Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 8 (Ny följd 4)
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Wolf, Kirsten
Titill: Arkiv för nordisk filologi, Saga heilagrar Önnu - en orientering
Umfang: 109
Titill: Saga heilagrar Önnu
Ritstjóri / Útgefandi: Wolf, Kirsten
Höfundur: Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir
Titill: Meyjar og völd : rímurnar af Mábil sterku
Titill: Íslenzk miðaldakvæði: Islandske digte fra senmiddelalderen
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: I:2
Titill: Íslenzk miðaldakvæði: Islandske digte fra senmiddelalderen
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: II

Lýsigögn