Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 482 4to

Gísla saga Súrssonar ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-114v)
Gísla saga Súrssonar
Titill í handriti

Saga af Gísla Súrssyni

Upphaf

Það er upphaf á sögu þessi …

Niðurlag

… er ekki fleira frá honum sagt í þessi sögu.

Baktitill

Og lýkur hér nú sögu Gísla Súrssonar.

Athugasemd

Lengri gerð sögunnar.

Blöð 15r (l.6)-24 eru auð til marks um eyðu í forriti.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 118 + i blöð (216 mm x 162 mm). Blað 15r er autt fyrir utan nokkur orð í efstu línu; blöð 15v-24v eru auð; sömuleiðis blöð 115r-118v; blað 114v er autt að hálfu.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með rauðu bleki 1-114; blöð 115-118 eru ómerkt.

Kveraskipan

Fimmtán kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 57-64, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 65-72, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 73-80, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 81-88, 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 89-96, 4 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 97-104, 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 105-112, 4 tvinn.
  • Kver XV: blöð 113-118, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150-155 mm x 90-95 mm.
  • Línufjöldi er ca 18-19.
  • Vísuorð eru sér um línu (sjá t.d. 79r).
  • Leturflötur er afmarkaður við innri og ytri spássíur með línum dregnum með þurroddi (sjá t.d. 97v).

Ástand

  • Blekblettir eru á jöðrum ytri spássía.

Skrifarar og skrift

Band

Band frá árunum 1880-1920 (215 null x 170 null x 26 null). Spjöld klædd dökkbláum brúnyrjóttum pappír, strigi á kili og hornum.

Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, en á því er brot úr Þingfararbálki og Konungserfðum.

Fylgigögn

Seðill (155 mm x 92 mm) á saurblaði 2r er með hendi Árna Magnússonar. Á honum stendur Ex bibliotheca Regia.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og er líklega uppskrift eftir AM 149 fol. fremur en beint eftir Membr.Reg. (Agnete Loth). Það er tímasett til um 1700 í  Katalog I

Það var áður hluti af stærra handriti sem í voru AM 566 a 4to, AM 487 4to og JS 435 III 4to.

Ferill

Þormóður Torfason gaf Árna Magnússyni handritið árið 1697, ásamt fleiri sögum sem Ásgeir skrifaði eftir skinnbók (sbr. Már Jónsson 1998).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. september 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 14. júní 1887, Katalog I; , bls. 659 (nr. 1254), GI skráði 14. janúar 2002, VH skráði handritið apríl 2009; lagfærði í nóvember 2010.

Viðgerðarsaga

Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Myndir gerðar árið 1998 eftir renegatfilmu frá Kaupmannahöfn, ljósmyndari Jóhanna Ólafsdóttir (filman er varðveitt í öskju 457).

Notaskrá

Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Höfundur: Guðni Kolbeinsson, Jónas Kristjánsson
Titill: Gripla, Gerðir Gíslasögu
Umfang: 3
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Guðni Kolbeinsson, Jónas Kristjánsson
Titill: Sagnalíf : sextán greinar um fornar bókmenntir, , Gerðir Gíslasögu
Ritstjóri / Útgefandi: Þórður Ingi Guðjónsson
Umfang: 90
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Höfundur: Þórður Ingi Guðjónsson
Titill: Editing the three versions of Gísla saga Súrssonar, Creating the medieval saga
Umfang: s. 105-121
Lýsigögn
×

Lýsigögn