„Þórðar hreðu saga“
„Þórður hét maður, son Hörða-Kára …“
„… höfum vér ekki heyrt fleira með sannleik af honum sagt.“
Og lýkur hér nú sögu Þórðar hreðu.
Blaðmerking með rauðu bleki 1-47; blað 48 er ómerkt.
Sex kver.
Band (220 mm x 175 mm x 13 mm) er frá 1880-1920.
Strigi er á kili og hornum, pappírsklæðning.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr Jónsbókarhandriti (frá um 1600) með rauðum fyrirsögnum og skrautstöfum. Á þessum blöðum er brot af Landsleigubálki, hér kallaður Búnaðarbálkur. Blöð úr þessu handriti hafa verið notuð í band á önnur handrit safnsins.
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 656.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. apríl 1975.
VH skráði handritið 15. apríl 2009; lagfærði í desember 2010, GI skráði 19. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 9. júní 1887. Katalog I; bls. 656 (nr. 1244).