Manuscript Detail
AM 463 1-2 4to
There are currently no images available for this manuscript.
Egils saga Skallagrímssonar
LATIN SMALL LETTER O WITH CURLSpecial character shown similar to its original form.
Physical Description
Band frá ca 1700-1730 (217 mm x 168 mm x 20 mm). Spjöld eru klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti, kjölur er einnig klæddur bókfelli. Síðara saurblað að aftanverðu hefur áður þjónað sem spjaldklæðning en hefur verið losað frá spjaldinu til þess að flúraðir upphafsstafir á innbroti gamla bókfellsins á spjaldinu mættu njóta sín. Áður var pappakápa utan um bandið. Á henni eru leifar af bláum safnmarksmiða. Kápan liggur með bandinu í stigaklæddri öskju.
Tveir seðlar, annar með hendi Árna Magnússonar og hinn með hendi Þormóðs Torfasonar, eru framan við textann:
- 1) Seðill (157 mm x 114 mm) með hendi Árna Magnússonar er með upplýsingum um uppruna og feril handrits: “fra sal. Assessor Thormod Toruesens enke 1720. mier virdest þesse bok med somu (α) hende sem Egils saga min in recenti membrana folio, hvar ä eru fleiri sogur, og ætla eg hr. Þorlak hafa lated skrifa bokina epter minne storu membranâ, sem fyrrum hefe vered eign Biorns Magnussonar. α) imo mier virdist ennnu, ad hendur þessar sieu likar, iafnvel þott kalfskinns bokin sie med settara skrift, enn þessa Eigils saga.”
- 2) Seðill með tímatalsupplýsingum með hendi Þormóðs Torfasonar.: “Nota hos hypothese Eigill giorde drapu Eiriks kongs sem Hoffudlausn er kollud anno 936 Var 14 aara þa hann siglde fyrst fol 45 Anno (strikað út: 915) 916 Adalsteinn kongur kom til rikis anno 924 26 august A þvi (strikað út: fyrsta) odru aare hans haffde hann strjd vid Olaff kong aff Skotlande anno 926 fol 47 H00000 Bio00t000 Eigill var med konge veturinn effter og drog thil Noregs um sumared anno (strikað út: 926) 927 og 0000 at g00d00 þad aar og var þann vetur J norege kom so t000 vored thil Jslands anno 928 og haffde þa vered burt J tolff aar (eitthvað strikað út) fol 67 þa vill Eigill fæddur Anno 901 J seinna sinn dro Eigill fra jslande anno 933 fol 68 drap Berg Onund anno 934 fol 73 var a Jslande anno 935 medan þeir Hakon Adalsteinsfostre deildu um Noreg Siglde ut anno 936 og kom thil Nordhimmralande fol 78 Eigill drap Bard anno (strikad út: 915) 916 fol 49 herjade J curlande anno (strikad út: 916) 917 fol 51 þa haffde Haralldr Gormsson teked vid rjke fol 45 strid J skann affbrandt og udplynd00 s000 l000f 54 var med þor00J Norege 918 fol 55 slost med 00t00d sk00g0 vid Jotlande sjdan Anno 919 kom thil Adalsteins kongs med Þorolfi 926”
History
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. mars 1995.
Additional
VH skráði handritið 3. apríl 2009; lagfærði í desember 2010, DKÞ skráði 20. ágúst 2003, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. maí 1887. Katalog I; bls. 650-651 (nr. 1235).
Viðgert í Kaupmannahöfn í ágúst til september 1994. Pappakápa, sem var áður utan um bandið, liggur í öskju með handritinu.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, frá Arne Mann Nielsen.
Contents
Part I ~ AM 463 1 4to
Egils saga Skallagrímssonar
“Hér byrjar sögu Egils Skallagrímssonar ”
“Úlfur hét maður son Bjálfa og Hallberu …”
“… og lýkur þar svo þessari frásögu.”
“Anno 1664, þann 19. dag mars (bl. 56v)”
Löngu kvæðin vantar nema fyrstu vísu Sonatorreks.
Physical Description
- Blaðsíðutal frá 1-113, blaðsíðu 41 vantar í blaðsíðutal. Blaðsíða 40 (blað 20v) hefur síðar fengið númer “41” (41 er skrifað með blýanti) til viðbótar og er nú blaðsíða “40-41”.
Sjö kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
- Blöð eru víða blettótt og skítug (sjá t.d. 28r, 33v og 62v).
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 160-170 mm x 135 mm.
- Línufjöldi er ca 31-35.
- Griporð (sbr. t.d. á blöðum 19v-20r).
- Markað er fyrir innri og ytri spássíum; hugsanlega með þurroddi eða því að brotið hefur verið upp á blöð (sjá t.d. blað 15v).
- Með hendi Brynjólfs Jónssonar á Efstalandi, fljótaskrift.
- Fjöldi sagnfræðilegra spássíugreina með hendi Þormóðs Torfasonar.
Tveir seðlar, annar með hendi Árna Magnússonar og hinn með hendi Þormóðs Torfasonar, eru framan við textann:
- Seðill með hendi Árna Magnússonar er með upplýsingum um uppruna og feril handrits.
- Seðill með tímatalsupplýsingum er með hönd Þormóðs Torfasonar.
History
Handritið er skrifað á Íslandi árið 1664. Árni Magnússon taldi að Þorlákur Skúlason hefði látið skrifa bókina eftir AM 132 fol. (sbr. seðil). Sennilega hefur annað handrit Egils sögu, sem nú er glatað, einnig verið forrit. Handritið var áður hluti af stærri bók. Í þeirri bók, sem Árni tók í sundur, voru sögur sem nú eru í AM 443 4to, sem einnig er með hendi Brynjólfs Jónssonar (sbr. AM 435 b 4to, blöð 17v og 18 (bls. 78-79 í prentaðri útgáfu)). Sama hendi virtist Árna og vera á AM 128 fol. (sbr. seðil), hluta úr Sturlunga sögu í AM 440 4to, Göngu-Hrólfs sögu í AM 587 c 4to og ýmsum sögum sem nú eru í AM 342 4to (sbr. AM 435 b 4to, blað 17v og 18).
Part II ~ AM 463 2 4to
Egils saga Skallagrímssonar
“… þeir börðust. Þorsteinn reið á Álftanes …”
“… og lýkur þar svo þessari frásögu.”
Niðurlag sögunnar:
Uppskrift gerð fyrirÁrna Magnússon.
Physical Description
- Önnur hver síða er tölusett.
Eitt kver, 3 tvinn.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 170-175 mm x 125-130 mm.
- Línufjöldi er 20-21.
- Með hendi óþekkts skrifara Árna Magnússonar, kansellískrift.
History
Handritið er skrifað á Íslandi fyrir Árna Magnússon og tímasett til ca 1700 í Katalog I, bls. 650.
Bibliography
| Author | Title | Editor | Scope |
|---|---|---|---|
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
| Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||