„Egils saga Skallagrímssonar“
„Úlfur hét maður son Bjálfa og Hallberu … “
„… átti í víking sjö orustur.“
Og endast hér Egils saga Skallagrímssonar.
Löngu kvæðin þrjú vantar fyrir utan fyrstu vísu Sonatorreks. Skrifari sýnir eyðu í forriti sínu með því að hafa blað 7v að mestu autt.
„Sagan frá Búa Andríðarsyni og Kjalnesingum“
„Helgi Bjóla son Ketils flatnefs …“
„… og er mikil ætt frá honum komin.“
Og endar þar með Kjalnesinga sögu.
„Sagan af Jökli syni Búa Andríðarsonar“
„Jökli þótti nú svo illt verk sitt …“
„… frá Jökli Búasyni og endar hér Jökuls sögu.“
Blað 42v er autt.
„Glúms saga; er nefndur er Víga-Glúmur“
„Helgi hét maður og var kallaður Helgi hinn magri …“
„… og lýkur þar sögu Glúms Eyjólfssonar.“
„Sagan frá Finnboga hinum ramma.“
„Ásbjörn hét maður og var kallaður dettiás …“
„… og þóttu allir mikilhæfir menn hvar sem þeir komu.“
Og endast hér nú sagan frá Finnboga hinum ramma.
„Hallfreðar saga vandræðaskálds“
„Þorvaldur hét maður og var kallaður skiljandi …“
„… og er margt manna frá honum komið.“
Og lýkur hér sögu Hallfreðar vandræðaskálds.
„Bandamanna saga og frá Oddi Ófeigssyni“
„Ófeigur hét maður er bjó vestur í Miðfirði … “
„… og lýkur svo sögu þessi.“
„Ölkofra þáttur“
„Þórhallur hét maður. Hann bjó í Bláskógum …“
„… Og lýkur þar sögu Ölkofra.“
„3. apríl 1660.“
Tíu kver.
Með hendi Helga Grímssonar á Húsafelli (sbr. blað 72r og saurblað), blendingsskrift.
Band (192 null x 175 null x 20 null) frá 1975. Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Guðríður Stefánsdóttur á Snjáfuglsstöðum, ekkja Helga Grímssonar, átti handritið og þaðan fékk Árni Magnússon það til eignar (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1975.
VH skráði handritið 1. apríl 2009; lagfærði í desember 2010, DKÞ skráði 19. ágúst 2003. Kålund gekk frá handritinu til skráningar nóvember 1886 Katalog I; bls. 646-647 (nr. 1227).
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1975. Eldra band fylgdi.