„Hér byrjast saga af Eigli Skallagrímssyni er bjó á Borg við Borgarfjörð.“
„Á dögum Hálfdánar kóngs hins svarta …“
„ … dó hann að Mosfelli og var hann þar heigður. Ei höfum vér meira af hönum að segja en hér er skrifað.“
Og ljúkum svo þessari sögu af Eigli Skallagrímssyni.
Yngri endurgerð sögunnar. Á blaði 3v sýnir skrifari eyðu í forriti sínu með fjórum punktalínum.
Sautján kver.
Band (217 null x 167 null x 30 null) er frá 1911-1913.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 646.
Að því er fram kemur á seðli (sjá fylgigögn) þá telur skrifari Árna Magnússonar söguna ritaða eftir fólíóhandriti með hendi Sigurðar Jónssonar á Knerri, í eigu Ólafs Einarssonar sýslumanns og telur höfund þessarar sögugerðar jafnvel Sigurð sjálfan. Árni leiðréttir það hins vegar og segir höfund gerðarinnar að öllum líkindum lærða Gísla Jónsson í Melrakkadal (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. desember 1992.
VH skráði handritið 31. mars 2009; lagfærði í desember 2010, GI skráði 6. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 21. maí 1887. Katalog I; bls. 646 (nr. 1226).
Yfirfarið í október 1992.
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1911-1913.