Skráningarfærsla handrits

AM 426 4to

Annáll frá fæðingu Krists til ársins 1313 ; Danmörk, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-63v)
Annáll frá fæðingu Krists til ársins 1313
Titill í handriti

Annales Islandici | à Nato Chriſto ad annum ejus | 1313. og hafa aldrei lengra náð.

Upphaf

Annáll þessi tekur til …

Niðurlag

puro spatio sine scripturả.

Athugasemd

Í annálinn vantar árabilið 1000-1269 sem mun hafa vantað í forrit handritsins (sbr. blað 1r).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
65 blöð (180-190 mm x 135-140 mm); blöð 1v-2r eru auð, sömuleiðis blöð 64 og 65.Skrifað er á versóhlið blaða en rektóhliðin er auð.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með rauðu bleki 1-63. Blöð 64 og 65 eru óblaðmerkt.

Kveraskipan

Níu kver.

  • Kver I: blöð 1-2, 1 tvinn.
  • Kver II: blöð 3-8, 3 tvinn.
  • Kver III: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 17-25, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 26-33, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver VI: blöð 34-41, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 42-49, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 50-57, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 58-65, 4 tvinn

Umbrot

  • Aðeins er skrifað á vinstri síðu hverrar opnu (sjá t.d. blöð 2v-3r).
  • Ártöl eru tilfærð á spássíum (sjá t.d. blað 31v).

Ástand

  • Bleksmitun; texti sést í gegn.

Skrifarar og skrift
Band

Band (215 mm x 165 mm x 10 mm).

Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

  • Einn seðill (192 mm x 137 mm) með hendi Árna Magnússonar er festur inn á fremra kápuspjald: Til annum 1000 eru þessir annálar rétt hinir sömu sem Annals Reseniani hinir gömlu og kannski skrifaði eftir þeim eða viðlíku exemplar. Hversu langt eftir annum 1000 þeir hafi eins verið, er nú óvíst því í þessa vantar eftir annum 1000. Þessa annála hefur ekki magister Brynjólfur brúkað í sinni Collectione Annalium, þó ætla ég, að þeir í hans höndum verið hafi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 629.

Forrit uppskriftarinnar telur Árni Magnússon að hafi verið í eigu Brynjólfs Sveinssonar biskups, því hann þykist þekkja hönd hans á spássíu þess við árið 1309 (sbr. athugasemdir á blaði 1r) .
Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. júní 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 25. nóvember 2009; lagfærði í nóvember 2010 GI skráði 13. ágúst 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar nóvember 1886 í Katalog II , bls. 629-630 (nr. 1193).

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Storm, Gustav
Titill: Islandske annaler indtil 1578
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn